Hnattvæðingarverkefnið - Heilsa og velferð
Þann 15. október 2009 samþykktu samstarfsráðherrarnir (MR-SAM) að ýta úr vör nokkrum hnattvæðingarverkefnum árið 2010, meðal annars á sviði heilsu og velferðar. Hnattvæðingarverkefnið á sviði heilsu- velferðarmála er samfelld áætlun sem ætlað er að vera drifkraftur í norrænu samstarfi á heilbrigðis- og velferðarsviðinu. Áætlunin er til þriggja ára og skiptist í sjö sjálfstæðar undiráætlanir. Sex ráðherranefndir taka þátt í verkefninu, Norræna ráðherranefndin um atvinnulíf (MR-A), Norræna ráðherranefndin um atvinnulíf, orkumál og byggðastefnu (MR-NER), Norræna ráðherranefndin um fiskveiðar og fiskeldi, landbúnað, matvæli og skógrækt (MR-FJLS), Norræna ráðherranefndin um jafnréttismál (MR-JÄM), Norræna ráðherranefndin um félags- og heilbrigðismál (MR-S) og Norræna ráðherranefndin um menntun og rannsóknir (MR-U).
Markmið verkefnisins
Áætlunin fjallar um endingu og samkeppnishæfni norræna velferðarlíkansins með áherslu á úrlausnarefni sem norræna velferðarlíkanið stendur andspænis. Ríkin munu þróa skilvirkar lausnir á ákveðnum sviðum heilbrigðis- og velferðarmála í þverfaglegu samstarfi – og á þann hátt skapa samræmi og norrænan virðisauka.
Áætlunin byggir á tveimur meginþemum, sem eiga að efla hvort annað. (1) Velferð – þróun almennt og færniþróun starfsaflsins ásamt samþættingu, og (2) Heilsu – stuðla að heilbrigðum og vinnuhæfum íbúum og lífsgæðum. Áætlunin skiptist í sjö sjálfstæð verkefni sem falla undir þessi tvö meginþemu.
Tímabil
Áætlunin stendur yfir tímabilið 2010-2012
Fjárhagsupplýsingar
Gert er ráð fyrir að 37,5 milljónum danskra króna verði varið til verkefnisins

