- Info
Hnattvæðingarvettvangur
-
Hnattvæðingarráðstefna 2011
-
Dagsetning
31/10 2011
til 31/10 2011
-
Grænn hagvöxtur er mikilvægur þáttur í sameiginlegum aðgerðum í loftslagsmálum. Framþróun í umhverfistækni á alþjóðamarkaði opnar ný tækifæri fyrir Norðurlönd og norrænt atvinnulíf. Hagkvæm stjórnunartæki eru nauðsynleg til að koma grænum hagvexti af stað og breytingum sem þjóna umhverfinu. Norðurlöndin eiga mikla möguleika á því að vera í fararbroddi á alþjóðavettvangi hvað varðar grænan hagvöxt og það skiptir því miklu máli að skapa ný störf, auka samkeppnishæfni og jafnfram bæta umhverfið. Á þetta lögðu forsætisráðherrarnir áherslu á Hnattvæðingarráðstefnunni 2011. Skilgreind voru átta aðgerðarsvið sem talin eru sértaklega mikilvæg og er þeim lýst í skýrslunni Norðurlönd - leiðandi í grænum hagvexti.
-
Norræn hnattvæðingarráðstefna 2010 - Danmörku
-
Dagsetning
20/05 2010
til 20/05 2010
-
Hnattvæðingarráðstefnan 2010 mun fjalla um hvernig Norðurlönd geti unnið sig út úr efnahagskreppunni með áherslu á grænan hagvöxt. Lars Løkke Rasmussen forsætisráðherra Danmerkur og Halldór Ásgrímsson framkvæmdastjóri Norrænu ráðherranefndarinnar eru gestgjafar ráðstefnunnar.
-
Norrænt hnattvæðingarþing 2009 - Bláaa lóninu
-
Dagsetning
26/02 2009
til 27/02 2009
-
Markar fjármálakreppan endalok eða upphaf framsækinnar loftslagsstefnu? Leitað verður svara við þessari spurningu á hnattvæðingarþingi norrænu forsætisráðherranna sem að þessu sinni er haldið við Bláa lónið á Íslandi.
-
Hnattvæðingarráðstefna 2008 - Riksgränsen
-
Dagsetning
08/04 2008
til 09/05 2008
-
Þema fundarins er „Samkeppnishæf Norðurlönd í hnattvæddum heimi! Norðurlöndin þurfa að takast á við fjölda viðfangsefna svo sem hagsveiflur, loftslags- og orkumál. Á ráðstefnunni verður því fjallað um möguleika á því að viðhalda samkeppnishæfni og velferðarkerfinu, og það hvernig vinna eigi að viðfangsefnum sem tengjast loftslagsbreytingunum.
