KreaNord - Hönnunarsýning, hjálpartæki og velferðartækni
KreaNord; Skapandi iðnaður á Norðurlöndum tekur höndum saman um hönnunarsýningu á velferðartækni á EXPO í Sjanghæ. Sýningin verður haldin í The Nordic Light House dagana 1. - 15. október 2010. Fyrirtæki og stór norræn verkefni munu taka þátt í sýningunni og fá þar tækifæri til að sýna framleiðslu sína og tækni á heimssýningunni 2010.
Markmið KreaNord á EXPO 2010 er að sýna heiminum hvernig Norðurlönd styðja þau fyrirtæki sem hanna lausnir á sviði hjálpartækjaframleiðslu sem hafa afgerandi áhrif á þróun velferðartækni í heiminum.
Sjónum verður beint að þörfum neytenda, sem eru forsenda nýsköpunar í þróun framleiðslunnar. Æskilegt er að Norðurlönd séu kynnt sem félagslega ábyrg og viðurkennd á sviði fötlunar- og velferðartækni. Með nafninu “Better City, Better Life”, veitir EXPO 2010 tækifæri til að fjalla um aðstæður fatlaðra í borgum og bæjum.
Áhersla er lögð á efnislega og óefnislega þætti, sem undirstrikar markmiðið um að kynna norræna hönnun sem heildstætt ferli, þar sem þróun og framleiðsluferlið er talið jafn mikilvægt og framleiðsluvaran sjálf. Þess vegna vilja Norðurlönd marka sér sess sem eitt af þeim svæðum í heiminum, sem hefur reynslu og kynna sig sem mögulega samstarfsaðila jafnt á sviði iðnhönnunar og neytendavænnar nýsköpunar sem aðlöguð er þörfum einstaklingsins.
Það er velferðarnýsköpun sem samræmist framtíðarsýn Norðurlanda um að verða útflytjendur velferðar.
