Norræn-kínverski orku- og loftslagsdagurinn verður haldinn þann 25. júní 2010 á heimsýningunni í Sjanghæ. Þar koma saman ráðherrar, forystumenn í atvinnulífinu, sérfræðingar og aðrir hagsmunaaðilar frá Kína og Norðurlöndum. Viðburðurinn mun beina kastljósinu að því hvernig aukið samstarf Kína og norrænu ríkjanna getur stuðlað að þróun og notkun hreinnar orku og tækni á sviði loftslagsmála.

Norræni – kínverski orku- og loftslagsdagurinn hefst í finnska skálanum með opnunaræðu Karen Ellemann, umhverfis- og samstarfsráðherra Danmerkur, og formanns samstarfsnefndar norrænu ráðherranna. Í tilefni viðburðarins verða allir skálar norrænu ríkjanna heimsóttir þar sem framámenn ávarpa og gestum gefst tækifæri á að að bragða norrænan mat og drykk, upplifa skemmtiatriði og stækka tengslanetið.
Samstarf Kína og Norðurlandanna á sviði orku- og loftslagsrannasókna, þróunar og notkunar getur leitt saman þá færni sem til staðar er í löndunum og leyst úr læðingi samlegðaráhrif í þróun orkutækni. Kína er á hraðri leið með að verða forystuþjóð á sviði þróunar á hreinni orkutækni og notkun þessarar tækni fer ört vaxandi þar. Saman búa norrænu ríkin, Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð yfir færni á margvíslegum sviðum hreinnar orkutækni og einstaka reynslu af samstarfi vegna rannsókna og þróun á orkutækni á alþjóðavettvangi.

Meginmarkmið þessa viðburðar er að leiða saman styrkleika allra ríkjanna og gera margvíslegt samstarf milli Kína og norrænu ríkjanna að veruleika. Miðað er að því að byggja upp Kínverskt-Norrænt rannsóknanet, byggja upp þekkingu beggja aðila á rannsóknum og þróun á sviði orkumála, kynna sameiginlegar lausnir á sviði orku- og loftslagsmála, aðstoða við myndun Kínversks-Norræns samstarfsgrundvallar, og síðast en ekki síst að stuðla að framgangi markmiða.

www.nordicenergy.net/china

Hefst
25/06 2010
Endar
25/06 2010
Staðsetning
Shanghai World Expo
China


 

Tengiliður

Mats Holmström
Sími: +45 33 96 02 91
Tölvupóstur: