Þetta innihald er ekki til á því tungumáli sem þú hefur valið, því sýnum við innihaldið á dönsku.
- Info
Kalender
-
Norræn strandmenningarráðstefna
-
Dagsetning
06/06 2012
til 08/06 2012
-
Markmiðið með ráðstefnunni er að efla þekkingu og meðvitund um menningarsögulegt fiskmeti . Það er stjórnarnefnd um strandmenningu sem hefur umsjón með ráðstefnunni.
-
Ungmenni og jafnrétti – þekking og framkvæmd á Norðurlöndum
-
Dagsetning
07/06 2012
til 08/06 2012
-
Norræna æskulýðsnefndin og rannsóknastofnunin NOVA bjóða til norrænnar ráðstefnu um ungmenni og jafnrétti. Norrænu ríkin standa að miklu leyti andspænis sömu úrlausnarefnum á þessu sviði. Engu að síður er stefnan mismunandi milli landa.
-
TING - menningarhátíð í Helsinki
-
Dagsetning
25/10 2012
til 04/11 2017
-
Norræn menning verður áberandi þegar Norðurlandaráðsþing verður haldið í Helsinki haustið 2012. Á dagskrá menningarhátíðarinnar TING verður tónlist, leiksýningar, bókmenntir, sýningar, námstefnur og margt fleira.
-
Hið sjúka kerfi - norrænt heilbrigðiskerfi framtíðarinnar á í vök að verjast
-
Dagsetning
15/06 2012
til 15/06 2012
-
Norræna heilbrigðiskerfið á í vök að verjast. Clement Kjersgaard stjórnar umræðum stjórnmálamanna, sérfræðinga og ráðamanna um hvernig tryggja má framtíð norræna heilbrigðiskerfisins.
-
Norrænar barnabókmenntir - nýtt listrannsóknaefni?
-
Dagsetning
23/08 2012
til 25/08 2012
-
Á ráðstefnunni mætast vísindamenn í ólíkum fræðum, í barnabókmenntum, fjölmiðlun og listum og rithöfundar, myndskreytingarmenn og aðrir, sem munu kynna ólíkar tegundir barnabókmennta.
-
10. norræna ráðstefnan um mataræði haldin í Reykjavík, dagana 3. - 5. júní, 2012.
-
Dagsetning
03/06 2012
til 05/06 2012
-
Markmiðið með ráðstefnunni er að fylgjast með stefnum og straumum og skapa umræðuvettvang fyrir næringarfræðinga og aðra fagaðila sem vinna að málefnum sem tengjast mataræði og heilsu. Áhersla verður á nýjustu rannsóknir á sviði matvæla, mataræðis og heilsu á Norðurlöndum, en einnig á alþjóðavettvangi.
-
Afhending verðlauna til sigurvegara í samkeppni Norrænu ráðherranefndarinnar um þróun góðra tungumálaverkfæra
-
Dagsetning
01/11 2011
til 01/11 2011
-
Tveir aðilar sigruðu í samkeppni Norrænu ráðherraefndarinnar um tillögur að verkfærum sem nota má í starfi ráðherranefndarinnar við að aðstoða ungt fólk á Norðurlöndum við að bæta skilning á dönsku, norsku og sænsku. Á þessum hliðarviðburði mun Norræna ráðherranefndin afhenda sigurvegurunum tveimur viðurkenningarskjal og blóm. Tónlistarmenn úr Orkester Norden leika af fingrum fram og bornar verða fram veitingar.
-
TING - Þetta nýja norræna
-
Dagsetning
28/10 2011
til 06/11 2011
-
Hátíð tónlistar, kvikmynda, bókmennta, matar og sviðslistar í Kaupmannahöfn.
-
Velferðarlíkan framtíðar, tækifæri til aukinnar þátttöku.
-
Dagsetning
01/11 2011
til 01/11 2011
-
- Kynnið ykkur hvernig velferðartækni, hönnun fyrir alla og afstöðubreyting geta tryggt velferð okkar. Norræni lýðheilsuháskólinn (NHV) og Norræna velferðarmiðstöðin (NVC) bjóða til hádegisverðarnámstefnu.
-
Unga fólkið á Norðurlöndum og menningarleg fjölbreytni
-
Dagsetning
31/10 2011
til 31/10 2011
-
Norræni menningarsáttmálinn er 40 ára um þessar mundir og af því tilefni verða umræður um menningu á Norðurlöndum og menningarlega fjölbreytni. Komið og hlustið á Bertel Haarder, Manu Sareen, Shabana Rehman, Eskild Pedersen, Henrik Berggren, Minna Lindberg, Peder Duelund, Andrea Reuter og Charlotte Romlund Hansen.
-
Sjálfbær heilsa – ˵One Health frá norrænu sjónarhorni”
-
Dagsetning
31/10 2011
til 31/10 2011
-
Hliðarviðburður á Norðurlandaráðsþingi 2011. Að viðburðinum loknum mun norræna samstarfsnefndin um læknisfræði (NOS-M) kynna hvítbók sína um rannsóknir í læknisfræði í samstarfi við NordForsk. Borið verður fram freyðivín.
-
Ný norræn matargerð - Tækifæri og framtíð norrænnar matargerðar, þegar borðar er utan heimilis, Helsinki, dagana 11. - 12. október 2011
-
Dagsetning
11/10 2011
til 12/10 2011
-
Á ráðstefnunni verður sjónum beint að einu sértæku sviði í norræna velferðarlíkaninu - neyslu matar utan heimilis á stofnunum eins og skólum, sjúkrahúsum og mötuneytum.
-
Ráðstefna: „Hvers vegna er danska svona erfið?"
-
Dagsetning
30/11 2011
til 30/11 2011
-
Danska menntamálaráðuneytið býður til norrænnar ráðstefnu um skilning á nágrannatungumálum með sérstakri áherslu á dönsku. Ráðstefnan „Hvers vegna er danska svona erfið?" verður haldin á Norðurbryggju í Kaupmannahöfn og er hluti af norræna tungumálaátakinu. Ráðstefnan er haldin í samstarfi við Norrænt tungumálasamstarf og dönsku málnefndina.
-
Námstefna: Góður árangur? Gæði og aðstæður barna í norræna velferðarkerfinu.
-
Dagsetning
11/10 2011
til 12/10 2011
-
Norræna velferðarmiðstöðin heldur námstefnu um skipulagningu og fjármögnun félagslegrar þjónustu fyrir börn og ungmenni með sérþarfir og um uppbyggingu "best practice" í félagslega kerfinu og þjónustu við börn. Markhópurinn eru opinberar stofnanir sem fara með málefni barna á Norðurlöndum .
-
Ráðstefnan Kultur för livet 2011(Menning fyrir lífið) - Norræn ráðstefna um menningu, heilsu og lífsgæði
-
Dagsetning
06/10 2011
til 07/10 2011
-
Takið þátt og hafið áhrif á velferðarsamfélag framtíðarinnar! Markmiðið með ráðstefnunni er að miðla þekkingu og skapa umræður um rannsóknir og framkvæmd á sviði menningar, heilsu og lífsgæða. Fulltrúar á ráðstefnunni verða stjórnmálamenn, vísindamenn og samfélagsgagnrýnendur frá Svíþjóð, Danmörku, Noregi og Finnlandi. Finnar munu einnig kynna þverpólitíska framkvæmdaáætlun sína um menningu og velferð.
-
Fundur í norræna tengslanetinu um ofbeldi í nánum samböndum og ofbeldi gegn konum
-
Dagsetning
30/05 2011
til 31/05 2011
-
Finnska stofnunin fyrir heilsu og velferð býður til fundar í tengslum við formennsku Finna í Norrænu ráðherranefndinni. Markmiðið með fundinum er að skiptast á reynslu og þekkingu. Vísindamenn, stjórnmálamenn og aðrir sem vinna að málefnum tengdum ofbeldi í nánum samböndum og ofbeldi gegn konum eru velkomnir á fundinn.
-
Vinnustofa 2 um upplýsingar og samskipti á sviði þekkningar, heilsu og velferðar í norrænu samstarfi
-
Dagsetning
18/05 2011
til 18/05 2011
-
Á vinnustofunni verður sjónum beint að því hvernig Norræna ráðherranefndin getur eflt samstarf skrifstofunnar, stofnanna og samstarfsaðila, til að koma á upplýsingum um niðurstöður áætlana og verkefna á sviði þekkingar, heilsu og velferðar á framfæri. Niðurstöður verða lagðar fram í vinnuáætlun með leiðbeiningum um hvernig bæta megi og auka samræmingu milli þeirra sem að málinu koma hverju sinni.
Staður: Norræna ráðherranefndin, Ved Stranden 18, Kaupmannahöfn
Þátttakendur: Fulltrúar embættismannanefndanna EK-S og EK-U og upplýsinga- og fjölmiðlafulltrúar ráðuneyta og stofnana sem málið varðar.
-
Ráðstefna: ONE Health - heilsuefling hjá mönnum og dýrum
-
Dagsetning
17/05 2011
til 17/05 2011
-
Hugtakið ”One Health” er byggt á aukinni viðurkenningu á því að sjúkdómar og heilbrigði manna og dýra, tengist órjúfanlegum böndum. Það verður stöðugt ljósara að þörf er á samstarfi lækna og dýralækna með það að markmiði að efla forvarnir.
Á Norðurlöndum hafa alltaf verið viðhafðar góðar hefðir á sviði öryggi matvæla, forvarnir gegn smitsjúkdómum hafa verið miklar og notkun sýklalyfja hefur verið takmörkuð. Samhæfa þarf norræna reynslu á sviðinu, þannig að við getum lært enn frekar hvert af öðru.
Samhæfing og ímyndarþróun norrænnar reynslu og þekkingar gæti stuðlað að aukinni samkeppnishæfni Norðurlanda og beint sjónum að þessu mikilvæga málefni á alþjóðavettvangi.
-
Ráðstefna: Opin leið ungmenna
-
Dagsetning
17/05 2011
til 17/05 2011
-
Æskulýðsstjórnendur frá Finnlandi og Svíþjóð funda til að ræða um hvernig koma megi rjúfa einangrun unga fólksins. Í samstarfi við "Settlementtiliitto ja Ungdomsforum".
-
NCM-ESB námstefna: „An Arctic Agenda"
-
Dagsetning
08/04 2011
til 08/04 2011
-
„An Arctic Agenda" námstefnan beinir sjónum að því hvernig ESB getur haft áhrif á Norðurheimskautssvæðinu. Umræðuefni á námstefnunni verða; umhverfismál, efnahagsmál og nýsköpun og borgaralegt samfélag.
Námstefnan er haldin í kjölfar tveggja ráðstefna um Norðurskautssvæðið sem Norræna ráðherranefndin stóð fyrir: „Common Concern for the Arctic" og „Arctic - Changing Realities". Á ráðstefnunni „Common Concern for the Arctic” hófust jákvæðar viðræður milli ESB og Norrænu ráðherranefndarinnar um hugsanlegt samstarf um málefni Norðurskautssvæðisins.
Námstefnan er afrakstur þessara viðræðna og er markmiðið með henni að kynna þátttakendum nýjustu þekkingu og lausnir á þeim úrlausnarefnum sem blasa við á Norðurskautssvæðinu.