Document Actions

Eldri viðburðir

Velferðarlíkan framtíðar, tækifæri til aukinnar þátttöku.
Dagsetning 01/11 2011 til 01/11 2011
- Kynnið ykkur hvernig velferðartækni, hönnun fyrir alla og afstöðubreyting geta tryggt velferð okkar. Norræni lýðheilsuháskólinn (NHV) og Norræna velferðarmiðstöðin (NVC) bjóða til hádegisverðarnámstefnu.
Námstefna: Góður árangur? Gæði og aðstæður barna í norræna velferðarkerfinu.
Dagsetning 11/10 2011 til 12/10 2011
Norræna velferðarmiðstöðin heldur námstefnu um skipulagningu og fjármögnun félagslegrar þjónustu fyrir börn og ungmenni með sérþarfir og um uppbyggingu "best practice" í félagslega kerfinu og þjónustu við börn. Markhópurinn eru opinberar stofnanir sem fara með málefni barna á Norðurlöndum .
Norrænn dagur 2011 í Varsjá í Póllandi
Dagsetning 05/07 2011 til 05/07 2011
Á námstefnunni verður rætt um: „Snemmbúnar fyrirbyggjandi aðgerðir til að koma í veg fyrir féalgslega einangrun fjölskyldna." Sjónum verður beint að fjölskyldustefnu, með það að markmiði að aðstoða fjölskyldur sem eiga á hættu að einangrast eins fljótt og unnt er.
Vinnustofa um upplýsingar og samskipti
Dagsetning 08/04 2011 til 08/04 2011
ATH! Vinnustofan hefur verið flutt í húsnæði Norrænu ráðherranefndarinnar, Ved Stranden 18, Kaupmannahöfn. Boðið er til vinnustofu 8. apríl 2011 í Kaupmannahöfn, með það að markmiði að skilgreina þörf á uppglýsingagjöf og samskiptum um norrænt samstarf á sviði rannsókna- og menntunar, og félags- og heilbrigðismála. Byggt er á þeirri staðreynd að norræna samstarfið sé mikið og gott, en þó almennt óþekkt á Norðurlöndunum. Þessi staðreynd er óviðunnandi og á henni þarf að taka.
Hvert verður hlutverk norræna velferðarlíkansins í hnattvæðingunni?
Dagsetning 05/04 2011 til 06/04 2011
Hvert getur orðið hlutverk norræna velferðarlíkansins í þróun samfélaga okkar og hvaða áhrif hafa hnattvæðingin og lýðfræðilegar breytingar á það. Þetta eru nokkur af þeim málefnum sem rædd verða á ráðstefnunni „What Role will the Nordic Welfare Model Play in Globalization?" sem félagsmála- og heilbrigðisráðuneytið í Finnlandi, Lýðheilsustofnunin í Finnlandi og Norræna velferðarstofnunin (NVC) standa fyrir. Ráðstefnan verður haldin í Helsinki.
Hlustum á rödd unga fólksins! - Ráðstefna um atvinnuleysi ungs fólks
Dagsetning 20/06 2010 til 20/06 2010
Norræna velferðarstofnunin skipuleggur Nordic Day 2010 í tengslum við ESN-ráðstefnuna í Barcelona. Þemað er atvinnuleysi ungs fólks með áherslu á jaðarhópa. Atvinnuleysi ungra er eitt af stærstu félagslegu vandamálum í Evrópu og því er þetta þema valið. Ungt fólk með reynslu af vandamálinu, sérfræðingar og aðilar sem vinna með málið ræða á opinskáan hátt afleiðingar atvinnuleysis ungs fólk, aðgerðir og mögulegar lausnir á vandanum.
Norræn ráðstefna 2010 - Frá andlegri þjáningu til andlegs heilbrigðis - áhersla á þroskahefta einstaklinga
Dagsetning 06/05 2010 til 08/05 2010
Ráðstefnan fjallar um vonina í meðferð, forvörnum og lausnum. Við munum leggja áherslu á tengsl og samskipti. Við munum fjalla um siðfræði, samráð og mannréttindi. Við viljum sýna stöðuna í dag, og hvert við stefnum, þegar um er að ræða andlega sjúkdóma hjá þroskaheftum einstaklingum.
Norrænn dagur 2009 í Prag
Dagsetning 21/06 2009 til 21/06 2009
Þema dagsins er áhrif hnattvæðingarinnar á félagslega geirann.
”New perspectives – Best mental health practices”
Dagsetning 07/05 2009 til 08/05 2009
Norræn velferðarmiðstöð, Norræni lýðheilsuháskólinn og Geðhjál á Íslandi bjóða til fyrstu norrænu ráðstefnunnar um góða geðheilsu. Ráðstefnan verður haldin á Akureyri, Íslandi.

 

Tengiliður

Maria-Pia de Palo
Sími: +45 33 96 02 77
Tölvupóstur: