Samstarfsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar um heimskautasvæðin 2009-2011
1. Formáli
Öll starfsemi sem Norræna ráðherranefndin tekur þátt í á að vera í samræmi við almenn stefnumið ráðherranefndarinnar sem og norrænu þjóðríkjanna. Samstarfsáætlunin um heimskautasvæðin kemur til viðbótar við aðrar áætlanir, stefnumótun og vinnuáætlanir Norrænu ráðherranefndarinnar sem einnig geta fjallað um málefni heimskautasvæðanna á einhvern hátt.
Áætlunin er samstarfsvettvangur Norrænu ráðherranefndarinnar um málefni heimskautasvæðanna á tímabilinu 2009-2011 en að honum koma aðildarríki Norðurskautsráðsins, ESB um þróun heimskautagluggans í Norðlægu vídd sambandsins og nágrannar Norðurlandanna á heimskautasvæðunum.
2. Pólitísk markmið ráðherranefndarinnar í samstarfi um heimskautasvæðin
Almenn markmið við undirbúning og framkvæmd samstarfsverkefna Norrænu ráðherranefndarinnar á heimskautasvæðunum eru sem hér segir:
- Að auka þekkingu á og aðgerðir gegn loftslagsbreytingum, eiturefnum og þungmálmum á heimskautasvæðunum og afleiðingum þeirra fyrir lífsaðstæður manna og dýra, hnattrænt sem og á heimskautasvæðunum sjálfum.
- Að bæta lífsgæði almennings og vistfræðilegar og efnahagslegar forsendur fyrir áframhaldandi búsetu á heimskautasvæðunum, sérstaklega með stöðu Sama og annarra frumbyggja í huga.
- Að efla félagslega og menningarlega þróun meðal íbúa heimskautasvæða, með tilliti til áskorana hnattvæðingarinnar og með því að dýpka skilningi á marghliða og alþjóðlegum ferlum.
- Að vernda náttúru heimskautasvæðanna, náttúrugæði og líffræðilega fjölbreytni og tryggja sjálfbæra nýtingu á endurnýtanlegum sem og ekki endurnýjanlegum auðlindum á norðurslóðum.
Á pólitísku sviði snýst það einkum um að þróa hagnýta samstarfshætti enn frekar sem og samstarfsvettvang þjóðríkja sem eiga lönd að heimskautasvæðum svo þau geti axlað ábyrgð á framkvæmd sameiginlegra verkefna sem eru forsenda þess að ná meginmarkmiðum samstarfsins.
Að öllu jöfnu taka Norðurlöndin frumkvæði að aðgerðum á vettvangi Norðurskautsráðsins. Frumkvæði á öðrum vettvangi kemur til greina ef Norðurskautsráðið er ekki talið rétti vettvangurinn til þess.
3. Starf ráðherranefndarinnar að málefnum heimskautasvæðanna 2009-2011
Af þeim almennum markmiðum sem þegar hafa verið nefnd verður lögð áhersla á eftirfarandi markmið á tímabilinu 2009-2011:
- Norrænar aðgerðir og norræna þátttöku í Norðurskautsráði, þar á meðal verður rannsóknarverkefni Norðurskautsráðs um loftslagsmál, Arctic Climate Impact Assessment, fylgt eftir auk verkefna sem ætlað er að stemma stigu við dreifingu eiturefna og þungmálma á heimskautasvæðunum sem og niðurstöðum skýrslu Norðurskautsráðsins, Arctic Human Development Report.
- Að fylgja eftir og kynna niðurstöður norrænna rannsókna um afleiðingar loftslagsbreytinga á heimskautasvæðum á lífskjör frumbyggja og tækifæri á þróun efnahagslífs og menningar.
- Norrænar aðgerðir sem tryggja langtíma ávinning Alþjóðlega heimskautaársins 2007-2008 (IPY).
Heimskautaáætlunin á við um allt starf ráðherranefndarinnar að málefnum heimskautasvæðanna. Til viðbótar við forgangsverkefnin sem tilgreind hafa verið geta áætlanir og stefnumótun fagráðherranna falið í sér:
- starf til þess að varðveita náttúru heimskautasvæðanna og líffræðilega fjölbreytni auk leitar, reglubundnar mælingar og aðgerðir gegn eiturefnum.
- að efla tengslanet og byggja upp hæfni til lýðræðislegra samskipta þjóða með sérstakri áherslu á að styrkja aðstöðu og getu frumbyggja til virkrar þátttöku í sveitarstjórnum og samskiptum þjóða.
- að stuðla að hagvexti með atvinnuþróun, nýsköpun og aukinni menntun íbúa í strjálbýli, t.d. varðandi nýja orkukosti, þróun þjónustu- og menningargeira, staðbundna framleiðslu og verðmætasköpun.
- að beina rannsóknum að heimskautasvæðunum í anda sameiginlegrar stefnu í loftslags-, orku-, náttúru- og umhverfismálum og stuðla að varanlegum árangir af Alþjóðlega heimskautaárinu.
- samstarf um aðgerðir til að bæta heilbrigði, þar á meðal að berjast einkum gegn smitsjúkdómum og sjúkdómum af manna völdum og þróa vísbenda um lífskjör frumbyggja á heimskautasvæðunum á þeirra eigin forsendum.
- samstarf æðri menntastofnana á Norðurlöndum.
4. Aðgerðir samstarfsins
Raunhæfar aðgerðir í samstarfsáætlun um heimskautasvæðin verða ýmis framkvæmdar sem einstök verkefni eftir umsókn frá þjóðríkjum, samtökum eða stofnunum á Norðurlöndunum eða grannsvæðum þeirra, eða að frumkvæði fagráðherranna þegar þörf er á að styðja við pólitísk ferli.
Aðgerðir Norrænu ráðherranefndarinnar á heimskautasvæðum eru ýmist fjármögnuð af viðkomandi ráðherranefndum, almennum fjárveitingum samstarfsráðherranna eða jafnvel hvoru tveggja. Á almennum fjárlögum ráðherranefndarinnar er fjárveiting til framkvæmdar á áætluninni.
Ráðherranefndin getur veitt fé til vinnuhópa og verkefna Norðurskautsráðsins. Aðrar styrkja- og ferðaáætlanir ráðherranefndarinnar geta einnig stutt starf á heimskautasvæðunum.
5. Stjórnsýsla samstarfsáætlunarinnar
Ráðherranefndin veitir upplýsingar um áætlunina, m.a. á vefsíðu sinni. Í samskiptum er stuðst við norrænar stofnanir sem fyrir eru.
Starfsreglur Norrænu ráðherranefndarinnar um afgreiðslu verkefnisumsókna gilda hér, þar á meðal varðandi ferðakostnað, aðkeypta ráðgjöf, launakjör o.þ.h. auk bókhaldsskila og gerðar framvinduskýrslu verkefna.
Norræna samstarfsnefndin (NSK) hefur sett á fót sérfræðinganefnd um málefni heimskautasvæðanna (ASK) til þess að aðstoða við samstarfið á norðurslóðum. ASKverður áfram skipuð háttsettum embættismönnum á heimskautasvæðunum auk fulltrúa Færeyja og Grænlands. ASK mun veita ráðgjöf við undirbúning, framkvæmd og eftirfylgni heimskautaaðgerða ráðherranefndarinnar. ASK mun bjóða ICC á Grænlandi og Samaráðinu að taka þátt í starfinu í samræmi við stefnumið ráðherranefndarinnar í samstarfi við frjáls félagasamtök. Norræna samstarfsnefndin (NSK) og samstarfsráðherrar (MR-SAM) taka ákvarðanir í tengslum við samstarfsáætlunina um heimskautasvæðin.
Skrifstofa ráðherranefndarinnar annast stjórnsýslu varðandi ASK en viðeigandi stjórnsýslustofnun annast umsjón með verkefnum, fjárveitingum, skýrslugerð og viðhaldi heimskautagagnagrunnsins.
