- Info
Vinnuhópar
Vinnuhópar Norrænu ráðherranefndarinnar um umhverfismál(MR-M).
-
Norræni vinnuhópurinn um alþjóðlegar loftslagsviðræður (NOAK)
-
Meginmarkmið hópsins er að stuðla að alþjóðlegu samkomulagi um loftslagsmál.
-
Norræni úrgangshópurinn (NAG)
-
Starf norræna úrgangshópsins miðar að sjálfbærri meðhöndlun úrgangs á Norðurlöndunum og í Evrópu. Norræn þátttaka í samningu reglugerða ESB er mikilvæg. Einnig skiptir miklu máli að í reglugerðum ESB sé tekið tillit til aðstæðna á Norðurlöndunum.
-
Vinnuhópur um loftslagsmál(KoL)
-
Vinnuhópur um loftslagsmál vinnur að norrænum markmiðum að því að koma í veg fyrir alvarlegar loftslagsbreytingar og að því að koma í veg fyrir að loftmengun skaði umhverfið og heilsu fólks.
-
Norræni efnahópurinn (NKG)
-
Norræni efnahópurinn vinnur að markmiðasetningu hvað varðar efni og efnasambönd sem eflt geta sjálfbæra þróun sem byggir á heilsu- og umhverfisvernd jafnt fyrir núlifandi og komandi kynslóðir.
-
Umhverfis- og efnahagshópurinn (MEG)
-
Umhverfis- og efnahagshópurinn er þverfaglegur hópur sem starfar í umboði umhverfis- og fjármálasviðs Norrænu ráðherranefndarinnar. Verkefni vinnuhópsins felast í umfjöllun um umhverfis- og efnahagsleg málefni sem á döfinni eru og varða norræna hagsmuni.
-
Vinnuhópur um sjálfbæra neyslu og framleiðslu (HKP)
-
Vinnuhópurinn er samstarfsvettvangur umhverfis-, atvinnulífs- og neytendageirans. Tekið er tillit til hagsmuna allra þessara geira í vinnuáæltun hópsins. Markmið hópsins er að þróa, samræma og meta nauðsynleg stjórntæki sem miða að sjálfbærri neyslu og framleiðslu.
-
Vinnuhópur um vistkerfi vatnabúskapar(AEG)
-
Hópurinn á aðstoða norrænu ríkin við aðgerðir, sem stuðla að uppbyggingu vísindalegrar þekkingar og mynda undirstöðu fyrir sameiginlegar aðgerðir gegn mengun í norrænum höfum og á strandsvæðum.
-
Vinnuhópur um lifandi auðlindir (TEG)
-
Vinnuhópurinn hefur breiðan starfsgrundvöll sem nær til verndunar og sjálfbærrar nýtingar á náttúrunni, liffræðilegs fjölbreytileika, landslags, menningarverðmæta, menningarumhverfis og útivistar.