Document Actions

Norræni úrgangshópurinn er vinnuhópur á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar um umhverfismál.

Vinnuhópurinn styrkir verkefni á sínu fagsviði í samræmi við forgangsröðun ársins. Hópurinn vinnur að sjálfbærri meðferð úrgangs á Norðurlöndum og í Evrópu. Meginmarkmiðið er að lágmarka umhverfisáhrif úrgangs frá vistferilssjónarmiði.

NAG styrkir verkefni sem stuðla að framkvæmd áætlunar um umhverfismál fyrir 2013-2018. Markmið norræna úrgangshópsins (NAG er að stuðla að því að notkun auðlinda tengist ekki hagvexti með aukinni nýtingu auðlinda, forvörnum og endurvinnslu úrgangs. Umhverfisáhrif framleiðslu, vara og úrgangs eru lágmörkuð. Verkefni sem fylgja stefnu um sjálfbæra þróun og árlegri formennskuáætlun um umhverfismál og styðja við norræna stefnu um málefni barna og unglinga, norrænni stefnu um loftslagsmál og umhverfiseiturefni á norðurskautinu og norrænni samstarfsáætlun um norðurskautið koma einnig til greina. NAG setur í forgang verkefni sem stuðla að framkvæmd rammaáætlunar ESB um úrgang á Norðurlöndum og þróun annarra tilskipana og reglugerða um úrgang. Verkefni NAG skulu stuðla að samræmingu stefnu um hættuleg efni, framleiðsluvörur og úrgang með það að markmiði að minnka umhverfisáhrif frá meðhöndlun úrgangs.

Næsti umsóknarfrestur fyrir verkefni rennur út þann 1. maí 2013.

Umsóknir skal skrá í rafrænan umsóknagagnagrunn (sjá flipana "Søk støtte" vinstra megin).

Nánari upplýsingar um þetta fjármögnunartækifæri.

Fáanlegt í eftirfarandi löndum

Danmörk, Noregur, Ísland, Svíþjóð, Grænland, Finnland, Álandseyjar, Færeyjar

Tengd stofnun

Tengiliður

Metta Wiese
Sími: +46 (0) 106981125