Document Actions

Styrkir á vegum norræna úrgangshópsins.

Norræni úrgangshópurinn er vinnuhópur um umhverfismál sem starfar á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar. Vinnuhópurinn fjármagnar verkefni á sínu fagsviði í samræmi við forgangsröðun ársins. Hópurinn vinnur að sjálfbærri meðferð úrgangs á Norðurlöndum og í Evrópu. Meginmarkmiðið er að lágmarka umhverfisáhrif úrgangs í samræmi við vistferilssjónarmið.

NAG styrkir verkefni sem stuðla að og hrinda í framkvæmd Framkvæmdaáætlunar á sviði umhverfismála 2009-2012, með sérstaka áherslu á "Hættuleg efni og hringrás" og "Skilvirka nýting auðlinda og umhverfismiðaðan markað", stefnu um sjálfbæra þróun fyrir árin 2009-2012 og formennskuáætlanir um umhverfismál. Einnig er lögð áhersla á verkefni sem stuðla að sérstakri norrænni stefnu fyrir börn og ungmenni, Norrænni stefnu um loftslagsmál og hættuleg efni í umhverfinu á Norðurskautinu og samstarfsáætlanir og samstarfsverkefni Norrænu ráðherranefndarinnar á Norðurskautinu. NAG setur í forgang verkefni sem stuðla að framkvæmd rammaáætlunar ESB um úrgang á Norðurlöndum og þróun annarra tilskipana og reglugerða um úrgang. Verkefni NAG skulu stuðla að samræmingu stefnu um hættuleg efni, framleiðsluvörur og úrgang með það að markmiði að minnka umhverfisáhrif vegna meðhöndlunar úrgangs. Umsóknarfrestur fyrir verkefni sem unnin verða á árinu 2012 er til 1. maí. Umsóknir skal skrá í rafrænan umsóknagagnagrunn (sjá flipann "Søk støtte" vinstra megin).

Nánari upplýsingar um þetta fjármögnunartækifæri.

Fáanlegt í eftirfarandi löndum

Danmörk, Noregur, Ísland, Svíþjóð, Grænland, Finnland, Álandseyjar, Færeyjar

Tengd stofnun


 

Tengiliður

Metta Wiese
Sími: +46 (0) 106981125