Document Actions

Um Umhverfis- og efnahagshópinn

Umhverfis- og efnahagshópurinn er þverfaglegur hópur sem starfar í umboði umhverfis- og fjármálasviðs Norrænu ráðherranefndarinnar (NMR). Verkefni vinnuhópsins felast í umfjöllun um umhverfis- og efnahagsleg málefni sem eru á döfinni og varða norræna hagsmuni.

Ekonomi
Ljósmyndari
Magnus Fröderberg/norden.org

Umhverfis- og efnahagshópurinn er þverfaglegur hópur sem starfar í umboði umhverfis- og fjármálasviðs Norrænu ráðherranefndarinnar (NMR). Megin markið hópsins er að stuðla að efnahagsþróun sem byggir á sjálfbæru framleiðslu- og neyslumynstri svo tengsl myndist ekki milli umhverfisáhrifa og hagvaxtar, Verkefni hópsins miða að því að vera tengd við og taka þátt í norrænum og alþjóðlegum ferlum, sérstaklega evrópskum, sem efst eru á baugi hverju sinni. Til þess að ná þessu markmiði tekur hópurinn þátt í umræðum, skrifar skýrslur og leitast við að upplýsa um niðurstöður ýmissa verkefna. Niðurstöður verkefna skulu vera pólitískt áhugaverðar frá umhverfis- og efnahagssjónarmiði.

Í nefndinni sitja 12 fulltrúar. Hvert norrænu ríkjanna hefur tvo fulltrúa í vinnuhópnum, einn frá hvorum geira. Í hópnum eru einnig fulltrúar frá Færeyjum og Álandseyjum.

Umhverfis- og efnahagshópurinn fundar tvisvar á ári. Á vorfundi er fjallað um yfirstandandi verkefni, hugmyndir að verkefnum næsta árs og málefni sem efst eru á baugi, eins og OECD mál. Á haustfundi er starfs- og fjárhagsáætlun næsta árs samþykkt. Fundarefni og fundargerðir eru á síðunni „Fundir”.

Umhverfis- og efnahagshópurinn er með ritara í hálfu starfi. Einn fulltrúi hópsins er formaður og gegnir því starfi í tvö ár í senn. Fjárhagsáætlun hópsins er um það bil 2 milljónir danskra króna á ári.

Starfi og forgangsröðun MEG er nánar lýst í árlegum starfsáætlunum. Upplýsingar um verkefni, verkefnisstjóra og fjárhagsáætlanir verkefna eru í gagnagrunni um verkefni.

Tengt efni
  • Norræna ráðherranefndin um efnahags- og fjármálastefnu (MR-FINANS) (Samtök)

    Samstarfi norrænu ríkisstjórnanna um efnahags- og fjármál er stjórnað af norrænu fjármálaráðherrunum, sem mynda ráðherranefndina MR-FINANS. Samstarfinu er ætlað að gæta norrænna hagsmuna á alþjóðavettvangi og stuðla að efnahagslegri samættingu á alþjóðavettvangi.


 

Tengiliður

Maria Vuorelma
Sími: +358 400 143 945