Document Actions

Skipun

Skipun í vinnuhóp um lifandi auðlindir 2013-2018

1. Markmið

Meginmarkmið vinnuhóps um lifandi auðlindir,TEG, er að stöðva röskun á vistkerfum náttúrunnar, svo vistkerfin verði áfram öflug og veiti nauðsynlega vistkerfaþjónustu til að skapa velferð.  

Norræn vistkerfi á landi eru í góðu ástandi. Tryggja skal jafnvægi milli verndar og sjálfbærrar nýtingar vistkerfanna.

Loftslagssáttmáli Sameinuðu þjóðanna stuðlar að því að markmiðum um líffræðilega fjölbreytni verði náð:

Landslag, menning og borgarumhverfi eru auðlindir Norðurlandabúa, sem stuðla að velferð, vellíðan og útivist.

2. Verkefni hópsins

Hópurinn á að stuðla að framkvæmdUmhverfisáætlunarinnar 2013-2018 og samstarfsáætlun um norðurskautið ásamt því að fylgja eftir Stefnumótun um sjálfbæra þróun, öðrum áætlunum og formennskuáætluninni.

Verkefni hópsins eiga að taka mið af pólitískum forgangsverkefnum.

TEG beinir sjónum sérstaklega að náttúruvernd, líffræðilegum fjölbreytileika og vistkerfum. Hvað varðar menningarumhverfi þá er megináhersla á menningarlandslag.

Verkefnavinna hópsins skal taka mið af reglum Norrænu ráðherranefndarinnar og um þau skal setja skýr markmið.

Hópurinn stuðlar að alþjóðlegri þróun á ábyrgðasviði sínu.

Verkefni sem TEG ber ábyrgð á fjalla um liffræðilegan fjölbreytileika og ferskvatn.

Starfsemi hópsins á að vera í samræmi við Framkvæmdaáætlun um umhverfismál 2013-2018 kafla 3: Líffræðilegur fjölbreytileiki og vistkerfi: vistkerfi á landi, útivist, landslag og menningarumhverfi, líffræðilegur fjölbreytileiki og loftslagsbreytingar.

3. Samstarf við aðra hópa og svið

Hópurinn skal vinna með öðrum vinnuhópum á umhverfissviðinu. Samfjármögnun er æskileg ef mögulegt er, einnig frá öðrum greinum og samstarfssviðum.

Hópurinn á að vinna að þverfaglegu samstarfi stuðli það að samþættingu umhverfisverndar á öðrum sviðum og þar sem hægt er að ná stefnumótandi samlegðaráhrifum. Þetta á einnig við um rannsóknaumhverfið, atvinnulífið og borgaralegt samfélag.

4. Skipun fulltrúa í hópinn

Löndin tilnefna fulltrúa í hópinn sem skulu vera fulltrúar sjónarmiða lands síns og geta tryggt tengsl inn í landið. Fulltrúi Norrænu ráðherranefndarinnar situr í hópnum sem áheyrnarfulltrúi.

Formennska í hópnum færist milli landa og er formaður kosin til tveggja ára í senn, hægt er að framlengja formennsku í tvö ár.

Með hópnum starfar framkvæmdastjóri sem hefur skrifstofu í opinberri stofnun í einu af þjóðlandinu. Reiknað er með að framkvæmdastjóri starfi í nokkur ár.

Verkefni formanns og framkvæmdastjóra eru ólík.

Hópurinn getur sett á laggirnar undirhópa sem embættismannanefnd um umhverfismál (ÄK-M) verður að samþykkja.

5. Upplýsingamiðlun

Hópurinn skal vinna í samræmi við upplýsingastefnu umhverfissviðsins.

Verkefni hópsins eiga að vera sýnileg og sýna fram á pólitískan og hagnýtan árangur. Verkefnin skulu einnig tengjast stjórnun.

6. Skýrslugjöf og fjárhagsáætlun

Hópurinn skal á hverju starfsári leggja fram tillögur að starfs- og fjárhagsáætlun, sem inniheldur einnig kostnað vegna reksturs skrifstofu hópsins.

Hópurinn skal gera skýrslu með fjárhagsuppgjöri árlega.

Starfsemi undirhópa skal vera hluti af starfsáætlun og ársskýrslu.

Embættismannanefnd um umhverfismál skal samþykkja starfsáætlun og ársskýrslu.

Greiðslur til verkefna skulu vera í samræmi við reglur Norrænu ráðherranefndarinnar og eingöngu til samþykktra verkefna.

Kostnaður við vinnu fulltrúa í vinnuhópnum er greiddur af hverju landi fyrir sig.

Skipunartími þessa tímabils hefst 7. janúar 2013 og varir til 31. desember 2018.
Skipunin er samþykkt af embættismannaefnd um umhverfismál og getur hún breytt skipunum á starfstíma framkvæmdaáætlunar um umhverfismál 2013-2018.

Tengiliður

Britta Skagerfält
Sími: +46 10 698 1355