Document Actions

Styrkir frá vinnuhópi um lifandi auðlindir jarðar

Vinnuhópur um lifandi auðlindir jarðar (TEG) er vinnuhópur á vegum Norrænu ráðherranefndarinnar um umhverfismál. Vinnuhópurinn fjármagnar norræn verkefni á sínu sviði og eru verkefnin skilgreind árlega. Meginmarkmið með setningu vinnuhópsins er að sjá til þess að farið sé með náttúruna á sjálfbæran hátt með það að markmiði að vernda náttúruna og menningarlandslag, þannig að vistkerfi jarðar verði við haldið. Vinnuhópurinn hefur breiðan starfsgrundvöll sem nær til verndunar og sjálfbærrar nýtingar á náttúrunni, liffræðilegs fjölbreytileika, landslags, menningarverðmæta, menningarumhverfis og útivistar. Starfið nær einnig til tengslanna á milli loftslagsbreytinga og líffræðilegs fjölbreytileika, landslags og menningarumhverfis.

Umsóknarfrestur vegna verkefna árið 2014 verður í júní 2013. Nánari upplýsingar um umsóknarferli og skilyrði sem gerð eru til verkefna verðar birtar fljótlega.

Fáanlegt í eftirfarandi löndum

Danmörk, Noregur, Eistland, Ísland, Svíþjóð, Grænland, Lettland, Litháen, Álandseyjar, Finnland, Færeyjar

Tengd stofnun

Tengiliður

Britta Skagerfält
Sími: +46 10 698 1355