- Info
Greinar
-
Alþjóðasamningur um kvikasilfur í sjónmáli
-
-
Gjóskan úr íslenskum eldfjöllum er ekki það eina sem berst óhindrað með vindum milli landa. Hið sama á svo sannarlega við um kvikasilfur sem er eitt hættulegasta eiturefni í heiminum. Því verðum við Norðurlandabúar að beita okkur fyrir því að metnaðarfullur alþjóðlegur samningur verði samþykktur í því skyni að setja reglur um notkun og losun kvikasilfurs. Norðurlönd hafa gegnt mikilvægu hlutverki við að koma þessu samningaferli á skrið og fyrir þeirra tilstilli verður hafin vinna við gerð alþjóðasamnings um kvikasilfur á fundi Sameinuðu þjóðanna um málið sem haldinn verður í júní.
