Þetta innihald er ekki til á því tungumáli sem þú hefur valið, því sýnum við innihaldið á dönsku.
- Info
Kalender
-
Nordic Innovation Forum
-
Dagsetning
24/05 2012
til 24/05 2012
-
Norræna ráðherranefndin stendur fyrir Nordic Innovation Forum/Norrænn nýsköpunarvettvangi með það að markmiði að skilgreina og hvetja til nýsköpunar í grænum hagvexti og velferð á Norðurlöndum.
-
Vöxtur í skapandi greinum - á borgarafundi/Borgundarhólmi
-
Dagsetning
15/06 2012
til 15/06 2012
-
Tækifæri til að hitta Uffe Elbæk menningarmálaráðherra Danmerkur og fulltrúa úr kvikmynda-, tónlistar- og veitingageiranum og heyra um aðferðir og dæmi um hvernig skapandi greinar geta stuðlað að hagvexti.
-
Umræður um stjórnsýsluhindranir í Inatsisartut, Grænlandi
-
Dagsetning
20/04 2012
til 20/04 2012
-
Skýrsla um afnám stjórnsýsluhindrana á Norðurlöndum. (Naalakkersuisoq um menntun, rannsóknir og norrænt samstarf)
-
Nordic Seed Capital Summit 2012
-
Dagsetning
30/05 2012
til 30/05 2012
-
Nordic Seed Capital Summit er hluti af Nordic to Global Initiative, sem miðar að því að styðja þróun og alþjóðavæðingu ungra nýsköpunarfyrirtækja á Norðurlöndum.
-
Stjórnsýsluhindranir á Norðurlöndum
-
Dagsetning
19/04 2012
til 19/04 2012
-
Ráðstefna um stjórnsýsluhindranir á sviði atvinnu- og félagsmála. Norðmenn, sem fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2012, halda áfram að fjalla um og leita lausna á stjórnsýsluhindrunum á sviði atvinnu- og félagsmála.
Norrænu embættismannanefndirnar um atvinnulíf og heilbrigðis- og félagsmál hafa skipað sérfræðingahóp til að kortleggja stjórnsýsluhindranir á sviði atvinnu- og félagsmála. Niðurstöður skýrslu sérfræðingahópsins verða kynntar á þessari ráðstefnu um stjórnsýsluhindranir. Á rástefnunni verður rætt um mögulegar lausnir á þeim vandamálum sem stjórnsýsluhindranir valda og áframhaldandi afnám þeirra á sviði atvinnu- og félagsmála.
-
Færri stjórnsýsluhindranir, aukinn hagvöxtur
-
Dagsetning
17/04 2012
til 17/04 2012
-
Í tilefni væntanlegrar umræðu um stjórnsýsluhindranir, sem fram fer í danska þjóðþinginu þann 20. apríl , bjóða danska sendinefndin í Norðurlandaráði, Eyrarsundsnefndin og upplýsingaskrifstofan Norden i Fokus til umræðufundar um stjórnsýsluhindranir í Kristjánsborgarhöll, Kaupmannahöfn. Finn Lauritzen, framkvæmdastjóri Eyrarsundsnefndarinnar kynnir nýjar tölur úr væntanlegri hagvaxtargreiningu fyrir Eyrarsundssvæðið.
-
Þemaumræður um stjórnsýsluhindranir í norrænu þjóðþingunum
-
Dagsetning
11/04 2012
til 25/04 2012
-
Á tímabilinu 11. - 25. apríl munu öll norrænu þjóðþingin stofna til þemaumræðna um stjórnsýsluhindranir.
-
Norðurlönd í grænni forystutreyju
-
Dagsetning
15/03 2012
til 15/03 2012
-
Nordic Innovation Summit er ráðstefna sem haldin er tvisvar á ári fyrir stjórnendur og áhrifafólk í atvinnulífi og opinbera geiranum.
Þeir sem skipuleggja viðburðinn ákveða efnið ásamt Nordisk Innovation og Innovation Forum Norway.
Í þetta sinn verður áhersla lögð á sjálfbæra nýsköpun. Vil munum sýna dæmi um fyrirtæki sem hafa náð árangri á sviði sjálfbærrar nýsköpunar og beina kastljósinu að straumum og stefnum á þessu sviði.
-
Ráðstefna um sjálfbæra framleiðslu og notkun á lífmassa í lífrænt eldsneyti á Eystrasaltssvæðinu, haldin í Kaupmannahöfn dagana 20.–21. mars 2012.
-
Dagsetning
20/03 2012
til 21/03 2012
-
Norræna ráðherranefndin og Evrópska umhverfisstofnunin standa að ráðstefnu háttsettra fulltrúa um sjálfbæra framleiðslu og notkun lífmassa í lífrænt eldsneyti á Eystrsaltssvæðinu.