Document Actions
Þetta innihald er ekki til á því tungumáli sem þú hefur valið, því sýnum við innihaldið á dönsku.

Kalender

Norræn forysta í hnattrænu loftslagssamstarfi - námstefna
Dagsetning 24/01 2012 til 24/01 2012
Markmiðið með námstefnunni er að veita yfirsýn yfir áskoranir og efla þróun nýrra tillagna um sameiginlegar norrænar aðgerðir á sviði loftslagsmála, með aðgerðir sem stuðla að aukinni fjármögnun sjálfbærrar orku á Norðurlöndum í brennidepli og hvernig Norðurlönd geta stuðlað að aukinni fjárfestingu í sjálfbærri orkunýtingu í þróunarríkjunum.
Norræn nýsköpunarráðstefna
Dagsetning 04/06 2012 til 06/06 2012
Ráðstefnan er ætluð öllum þeim sem vinna með símenntun, markmiðið er að skapa umræðu milli stefnumótenda, símenntunarstofnana og aðila vinnumarkaðarins. Á ráðstefnunni verður rætt um nýsköpun og sköpunarkraft í ljósi norræna velferðarlíkansins og frá sjónarhóli símenntunar. Umsjón: Norræna tengslanetið um fullorðinsfræðslu
Nám á Norðurlöndum: Möguleikar og hindranir
Dagsetning 29/11 2011 til 22/11 2011
Upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar, Halló Norðurlönd, og Norræna félagið standa fyrir málþingi um möguleika ungs fólks í námi á Norðurlöndum 29. nóvember næstkomandi. Á málþinginu verða meðal annars erindi frá Lánasjóði íslenskra námsmanna, Sambandi íslenskra námsmanna erlendis og Alþjóðaskrifstofu háskólastigsins auk þess sem námsmenn deila reynslusögum. Velt verður upp þeirri spurningu hvort möguleikar ungs fólks til náms á Norðurlöndum hafi minnkað á undanförnum árum og hvernig auka megi upplýsingaflæði til ungs fólks. Málþingið er öllum opið og þátttaka er ókeypis.
Norræna ráðherranefndin á COP17
Dagsetning 28/11 2011 til 09/12 2011
Markmiðið með þátttöku norrænu ríkjanna á COP17 er að stuðla að lausnum á lofstlagsvandanum og sýna dæmi um leiðir til að takast á við loftslagsvandann sem geta orðið öðrum að leiðarljósi. Á þessari síðu eru nánari upplýsingar um viðburði á vegum Norrænu ráðherraefndarinnar á COP17 og fjöldi nytsamlegra upplýsinga úr norrænu samstarfi um loftslags- og umhverfismál.
Hnattvæðingarráðstefna 2011
Dagsetning 31/10 2011 til 31/10 2011
Grænn hagvöxtur er mikilvægur þáttur í sameiginlegum aðgerðum í loftslagsmálum. Framþróun í umhverfistækni á alþjóðamarkaði opnar ný tækifæri fyrir Norðurlönd og norrænt atvinnulíf. Hagkvæm stjórnunartæki eru nauðsynleg til að koma grænum hagvexti af stað og breytingum sem þjóna umhverfinu. Norðurlöndin eiga mikla möguleika á því að vera í fararbroddi á alþjóðavettvangi hvað varðar grænan hagvöxt og það skiptir því miklu máli að skapa ný störf, auka samkeppnishæfni og jafnfram bæta umhverfið. Á þetta lögðu forsætisráðherrarnir áherslu á Hnattvæðingarráðstefnunni 2011. Skilgreind voru átta aðgerðarsvið sem talin eru sértaklega mikilvæg og er þeim lýst í skýrslunni Norðurlönd - leiðandi í grænum hagvexti.
Málþing um menningu: Myndun samstarfs innan Norrænu víddarinnar, 24.-25. nóvember í Finnlandi
Dagsetning 24/11 2011 til 25/11 2011
Markmið málþingsins er að ræða markmið og fjalla um árangur í samstarfi innan Norrænu víddarinnar um menningu (NDPC). Enn fremur er markmiðið að koma á uppbyggjandi skoðanaskiptum og stuðla að miðlun nýskapandi hugmynda milli fulltrúa fjármögnunaraðila og skapandi iðanaðar.
Orkusveitarfélag afhending verðlauna
Dagsetning 31/10 2011 til 31/10 2011
Afhending verðlauna til besta norræna orkusveitarfélagsins. Verlaunin hlýtur orkusveitarfélag sem hefur lagt sérstaka áherslu á endurnýjanlega orku, grænan hagvöxt og orkutengdar aðgerðir í loftslagsmálum.
Græn Norðurlönd - þátttaka á jafnréttisgrundvelli
Dagsetning 01/11 2011 til 20/10 2011
Á hliðarviðburðinum verða pallborðsumræður um samhengi kynferðis, jafnréttis og loftslagsbreytinga. Markmiðið er að vekja athygli þátttakendanna á því að konur og karlar verða fyrir og hafa mismunandi áhrif á loftslagsbreytingarnar með hegðun sinni. Að auki verður norræni þekkingargrunnurinn um jafnrétti og loftslagsbreytingar (”Equal Climate – Kynferði og loftslagsbreytingar frá norrænu sjónarhorni”) kynntur við sama tækifæri.
Norrænu ríkin stöðva skattaflótta
Dagsetning 01/11 2011 til 01/11 2011
Morgunfundur í aðdraganda fundar norrænu fjármálaráðherranna í Kaupmannahöfn.
Hvernig afnemum við stjórnsýsluhindranir á Norðurlöndum?
Dagsetning 31/10 2011 til 31/10 2011
Upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar, Halló Norðurlönd, býður til umræðufundar um stjórnsýsluhindranir á Norðurlöndum. Halló Norðurlönd kynnir ritið „Sagan af Jyrki og Jóhönnu", þar sem segir frá ýmsum vandamálum sem norrænir borgarar lenda í þegar þeir flytjast á milli norrænu ríkjanna. Halló Norðurlönd býður fulltrúum flokkahópa Norðurlandaráðs til fundarins til að ræða efni þessa rits. Hvaða hindranir er brýnt að afnema og hvernig förum við að því?

Tengiliður

Kolbrún Árnadóttir
Tölvupóstur: