- Info
Sækja um styrki
Listi yfir útboð og styrkjaáætlanir sem fjármagnaðar eru af Norrænu ráðherranefndinni um atvinnu-, orku- og byggðamál.
-
Styrkir Norrænna orkurannsókna
-
Norrænar orkurannsóknir (NER) styrkja rannsóknir á sviði orkumála sem varða öll norrænu ríkin og geta eflt fjölþjóðlegt rannsóknasamstarf.
-
Nopef styrkir undirbúningsrannsóknir
-
Markmið sjóðsins er að styrkja og efla alþjóðlega samkeppnishæfni norrænna fyrirtækja með því að taka þátt í fjármögnun undirbúningskannana, sem stuðla að því að efla alþjóðavæðingu norrænna fyrirtækja. Nopef fjármagnar undirbúningsrannsóknir lítilla og meðalstórra norrænna fyrirtækja áður en þau hefja starfsemi í löndum utan ESB og EFTA.
-
Styrkir Norræna þróunarsjóðsins, NDF
-
NDF styrkir verkefni sem fjalla um loftslagsbreytingar í láglaunalöndum.
Styrkir NDF eru ætlaðir til að fjármagna verkefni sem fjalla um aðlögun og skilvirkar aðgerðir tengdar loftslagsbreytingum. NDF styrkir eru einkanlega veittir til að fjármagna tækniaðstoð, s.s. ráðgjafaþjónustu, til fjárfestinga í vörum, vinnu, þjónustu og til að koma til móts við annan kostnað sem tengist tækniaðstoð.
-
Norrænt Atlantshafssamstarf, NORA
-
NORA styrkir NORA-samstarfsverkefni, með þátttöku samstarfsaðila frá hið minnsta tveimur af fjórum NORA ríkjum (Grænlandi, Íslandi, Færeyjum og strandsvæðum Noregs). NORA á að stuðla að og auka samstarf á svæðinu með það að markmiði að gera Norður-Atlantshafsríkin að sterku norrænu svæði, sem einkennist af öflugri og sjálfbærri efnahagsþróun. Þetta er gert meðal annars með því að styrkja samstarfið milli fyrirtækja og rannsókna- og þróunarstofnana óháð landamærum.
-
Verkefnastyrkir Nordic Innovation
-
Nordic Innovation fjármagnar norræn verkefni sem efla nýsköpun og samkeppnishæfni í atvinnulífinu og leiða til viðskipta, og eru með sjálfbæra þróun í huga.