Markmið sjóðsins er að styrkja og efla alþjóðlega samkeppnishæfni norrænna fyrirtækja með því að taka þátt í fjármögnun undirbúningskannana, sem stuðla að því að efla alþjóðavæðingu norrænna fyrirtækja. Nopef fjármagnar undirbúningsrannsóknir lítilla og meðalstórra norrænna fyrirtækja áður en þau hefja starfsemi í löndum utan ESB og EFTA.
Nopef veitir víkjandi lán sem breyta má í styrki, þegar undirbúningsrannsóknum lýkur. Ef verkefnin leiða til þess að fyrirtækið hefur starfsemi í landinu er hægt að fá lánið afskrifað 100%. Leiði verkefnið ekki til starfsemi í landinu er eingöngu hægt að fá 50% af láninu afskrifað.
Kostnaður sem Nopef styrkir er m.a. launakostnaður, ferðakostnaður, kostnaður vegna laga- og fjármálaráðgjafar, kostnaður vegna utan að komandi ráðgjafar, þýðinga og kostnaður vegna túlka. Nopef getur fjármagnað allt að 40% af viðurkenndum kostnaði:
Umsókn skal miða að a.m.k. einu af áhersluatriðum Nopef:
Danmörk, Færeyjar, Finnland, Grænland, Ísland, Noregur, Svíþjóð, Álandseyjar