Document Actions

Um Norrænu ráðherranefndina um atvinnumál, orkumál og byggðastefnu

Samstarf Norðurlandanna á sviði atvinnumála, orkumála og byggðastefnu miðar að því að tryggja áframhaldandi hagvöxt á svæðinu. Með uppbyggingu nýskapandi atvinnulífs er ætlunin að tryggja samkeppnishæfni svæðisins áfram, án þess að hún verði á kostnað umhverfisins, loftslagsins eða samfélagsins í heild.

Í samstarfinu er lögð sérstök áhersla á

  • Að byggja upp atvinnulíf þvert á landamæri með því að afnema stjórnsýsluhindranir fyrirtækja
  • Að efla nýsköpunina í norrænum fyrirtækjum og norrænt samstarf um nýsköpunarstefnu
  • Að efla samstarf við grannríki Norðurlandanna
  • Að tryggja jafnvægi í svæðisbundinni þróun

Og á orkusviðinu

  • Að tryggja næga orku
  • Samræming norræna raforkumarkaðarins
  • Að efla þróun sjálfbærra orkugjafa
  • Að Norðurlönd verði í fararbroddi þróunar á alþjóðavettvangi

Norrænu ráðherrarnir sem fara með málefni atvinnu-, orku- og byggðastefnu stýra samstarfinu. Þeir funda a.m.k. einu sinni á ári og ræða þá og hefja samstarf á sviðum sem hafa norrænt gildi.

Embættismannanefndin um atvinnu- og orkumál ásamt embættismannanefndinni um byggðastefnu, sem í eiga sæti fulltrúar frá öllum löndunum, stýrir starfinu. Nefndin fundar 4 til 5 sinnum á ári til að undirbúa þær tillögur sem lagðar eru fyrir ráðherranna.

Skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn sér um dagleg störf og framkvæmd norræna ríkisstjórnarsamstarfsins.

Ein af deildum skrifstofunnar er deild Vaxtar og loftslagsmála, en hún undirbýr mál sem tekin eru fyrir í ráðherranefndinni um atvinnumál, orkumál og byggðastefnu og í embættismannanefndunum.

Skrifstofan sér einnig stundum um að ákvarðanir sem teknar eru í ráðherranefndinni séu framkvæmdar.

Fjöldi stofnana og nefnda á sviðinu eru fjármagnaðar og styrktar af ráðherranefndinni um atvinnulíf, orkumál og byggðastefnu.

Stofnanirnar eru;

Nefndirnar eru:

Tengt efni
  • Efnahags- og viðskiptanefndin (Samtök)

    Efnahags- og viðskiptanefndin fjallar um efnahagsumhverfi, rannsóknir, framleiðslu og verslun, þar með talið frelsi á markaði og atvinnumarkaði á Norðurlöndum.

  • Umhverfis- náttúruauðlindanefndin (Samtök)

    Umhverfis- og náttúruauðlindanefndin vinnur að því að viðhalda og þróa umhverfisvitund á Norðurlöndum


 

Tengiliður

Anneli Nummelin
Sími: +45 33 96 04 98
Tölvupóstur: