10. norræna ráðstefnan um mataræði haldin í Reykjavík, dagana 3. - 5. júní, 2012.
Markmiðið með ráðstefnunni er að fylgjast með stefnum og straumum og skapa umræðuvettvang fyrir næringarfræðinga og aðra fagaðila sem vinna að málefnum sem tengjast mataræði og heilsu. Áhersla verður á nýjustu rannsóknir á sviði matvæla, mataræðis og heilsu á Norðurlöndum, en einnig á alþjóðavettvangi.
