- Info
Sækja um styrki
Listi yfir útboð og styrkjaáætlanir sem fjármagnaðar eru af Norrænu ráðherranefndinni um fiskveiðar, fiskeldi, landbúnað, matvæli og skógrækt (MR-FJLS).
-
Nýr norrænn matur og matargerðarlist
-
Áætlunin Nýr norrænn matur og matargerðarlist miðar að því að þróa og gera norræna gildi sýnileg í matarmenningu, sælkeramatargerðarlistar, hráefni, ferðaþjónustu, hönnun, heilbrigði, velferð og atvinnuþróun. Gerð er krafa um þátttöku þriggja norrænna ríkja hið minnsta. Styrkirnir eru ætlaðir til að greiða fundarkostnaður og önnur bein útgjöld, en ekki til að greiða laun, fastan kostnað og annan samsvarandi kostnað.
-
Verkefnastyrkir frá Norræna samstarfsvettvanginum um landbúnaðar- og matvælarannsóknir
-
Norræni samstarfsvettvangurinn um landbúnaðarrannsóknir setur af stað og fjármagnar norræn gæðarannsóknarverkefni á sviði landbúnaðar. Tekið er á móti umsóknum um verkefnisstyrki sem tengjast rannsóknavirkni svo sem til námstefna og tengslanetamyndunar. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að þátttakendur í verkefnum séu frá þremur norrænu ríkjunum hið minnsta.
-
Støtte under arbejdsgruppen for Mikrobiologi, Dyrehelse og Dyrevelfærd (NMDD)
-
Søg støtte under arbejdsgruppen for Mikrobiologi, Dyrehelse og Dyrevelfærd (NMDD)
-
Styrkjaáætlun Samnorrænna skógarannsókna
-
Samnorrænu skógarannsóknirnar styrka rannsóknir á skógrækt og nýtingu, skógum og öðrum trávaxtarsvæðum, nýtinu framleiðslu úr tré og öðrum framleiðsluvörum úr skógum og einnig eru styrktar rannsóknir á gildi skóga almennt. Sjóðurinn styrkir samstarf sem felur í sér þátttöku þriggja norrænna ríkja hið minnsta. Lönd á grannsvæðum Norðurlandanna geta einnig tekið þátt í samstarfinu, en þátttakendur verða samt sem áður að vera frá þremur norrænum ríkjum hið minnsta.
-
Styrkir vinnuhóps um matvæli og upplýsingar til neytenda (NMF)
-
Sækja um styrk til vinnuhóps um matvæli og upplýsingar til neytenda (NMF)
-
Styrkir vinnuhóps um næringu, matvæli og eiturefnafræði (NKMT)
-
Vinnuhópurinn metur og forgangsraðar öllum skriflegum verkefnistillögum, sem falla undir fagsvið hópsins. Umsóknir eru metnar jafnóðum og þær berast.
-
Styrkir Norrænu erfðaauðlindastofnunarinnar
-
Markmiðið með styrkjunum er að auka samstarf milli Norðurlandanna í gegnum framhaldsmenntun og miðlun reynslu jafnframt því að auka þekkingu þátttakenda á plöntuframleiðslu Mannaskipti þurfa ekki að vera gagnkvæm. Skilyrði fyrir styrkveitingu er að atvinnurekandi leggi jafn mikið að mörkum og taki þátt í að greiða kostnað.