Document Actions

Vinnuhópar

Vinnuhópar innan Norrænu ráðherranefndarinnar um fiskveiðar og fiskeldi, landbúnað, matvæli og skógrækt (MR-FJLS) .
Vinnuhópur um sjávarútvegssamstarfið (AG-Fisk)
AG-Fisk var sett á laggirnar árið 2009 og tekur við hluta starfa fyrrum vinnuhópa NAF og MiFi. AG-Fisk er starfsvettvangur EK-FJLS (sjávarútvegur og fiskeldi) og hefur umsjón með verkefnum embættismannahópsins. Verkefni AG-Fisk er fyrst og fremst að koma í framkvæmd þeirri stefnu sem EK-FJLS (sjávarútvegur og fiskeldi) og Norræna ráðherranefndin marka, en einnig að vera ráðgefandi fyrir EK-FJLS (sjávarútvegur og fiskeldi) og Norrænu ráðherranefndina.
Norrænn vinnuhópur um næringu, mat og eiturefnafræði (NKMT)
Vinnuhópurinn ber ábyrgð á framkvæmd "Norrænnar áætlunar um bætta heilsu og lífsgæði með bættri fæðu og hreyfingu".
Norrænn vinnuhópur um matvæli og upplýsingar til neytenda (NMF)
Vinnuhópurinn ber ábyrgð á verkefnum á sviði matvæla- og neytendamála, sem felast meðal annars í lagasetningum, eftirliti, merkingum og upplýsingum til neytenda.
Norrænn vinnuhópur um örverufræði, dýraheilbrigði og dýravelferð(NMDD)
Verkefni vinnuhópsins er að tryggja samstarf norrænna stjórnvalda, sem annars vegar fara með málefni er varða dýravernd og hins vegar matvæli.
Norræna aðferðafræðinefndin um matvæli (NMKL)
Nefndin vinnur greiningaraðferðir og leiðbeiningar auk þess að halda námskeið á sviðinu um matvælagreiningu. Jafnframt er nefndin tengslanet norrænna matvælagreinenda.

 

Tengiliður

Tenna Schaldemose
Sími 33960263
Tölvupóstur