Menningarvettvangur
Ráðherranefnd um menningarmál, MR-K, heldur norrænar ráðstefnur, námstefnur og vinnustofur undir yfirskriftinni "Norrænn menningarvettvangur". Menningarvettvangurinn er í stöðugri þróun með það að markmiði að hann nýtist enn betur sem tæki fyrir ráðherranefndina.
Nánari upplýsingar um viðburði á döfinni og viðburði sem haldnir hafa verið innan Menningarvettvangsins, eru áVefsíðu Norrænu menningargáttarinnar.
