Document Actions

Listi yfir allar styrkjaáætlanir

Listi yfir aðrar styrkjaáætlanir og tilboð sem fjármögnuð eru af Norrænu ráðherranefndinni um menntamál og rannsóknir (MR-U).
Norrænt-rússneskt samstarf um menntun og rannsóknir
Norræna-rússneska áætlunin veitir styrki til samstarfs og myndunar tengslaneta milli norrænna og norðvestur-rússneskra menntastofnana.. Enn er verið að semja um fyrirkomulag áætlunarinnar milli Norrænu ráðherranefndarinnar og rússneskra stjórnvalda, en auglýst hefur verið eftir umsóknum um undirbúningsstyrki. Samtals eru 2.9 milljónir danskra króna til úthlutunar, umsóknarfrestur rann út 15. desember 2009.
Nordplus styrkjaáætlanir
Nordplus styrkir verkefni, sem hafa það að markmiði: að stuðla að framgangi norrænna tungumála og menningar, og gagnkvæmum tungumála- og menningarskilningi milli Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Að styðja við þróun gæða og nýsköpunar í símenntun í þátttökulöndunum með menntasamstarfi, þróunarverkfenum, því að skiptast á reynslu og tengslanetum. Að efla, þróa, læra af og miðla nýsköpunarverkefnum og ferlum á menntasviðinu með því að skiptast á reynslu kerfisbundið, eða styrkja og þróa norræna menntasamstarfið og stuðla að þróun menntasamstarfs milli Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna. Umsækjendur verða að vera stofnanir og samtök, einstaklingar geta ekki sótt um styrkina.
NORDVULK (Norræna eldfjallastöðin): áætlun
Nordvulk beinir sjónum að ungum vísindamönnum. Árlega eru auglýstar fimm stöður fyrir unga vísindamenn á sviði eldfjallafræða, þar sem ungum norrænum þegnum gefst kostur á að koma til Íslands búa þar og starfa.
Styrkjaáætlun Norræna sumarháskólans
Norræni sumarháskólinn styrkir náms- og rannsóknaverkefni. Verkefnisstyrkir eru fyrst og fremst ætlaðir til að styðja við verkefni sem unnin eru af þátttakendum sem árlega halda vetrarnámskeið, standa fyrir sumarnámskeiðum og sjá um útgáfu fyrir sumarháskólann. Verkefnin verða að vera norræn.
Styrkir Norrænu samstarfsnefndarinnar um hug- og félagsvísindarannsóknir
Norræna samstarfsnefndin um hug- og félagsvísindarannsóknir (NOS-HS) lýsir eftir umsóknum um styrki til Norrænna rannsóknasamstarfsverkefna - NORDic COllaborative Research Projects (NORDCORP). NOS-Hs vill efla norrænar rannsóknir og þróa nýog nýskapandi rannsóknasvið innan hug- og félagsvísinda.
Nordforsk: Norræna rannsóknamiðstöðin Áætlun um mannaskipti innan stofnfrumurannsókna
Markmiðið með Mannaskipta- og stofnfrumurannsóknaáætlun Nordforsk er að styrkja norrænt samstarf um rannsóknir á stofnfrumum í framtíðinni, með mannaskiptaáætlun fyrir nýja doktora. Einstaklingar með doktorspróf geta sótt um styrki í áætlunina. Umsýslu með flestum styrkjunum hafa háskólar eða rannsóknastofnanir. Umsækjendur skulu vera í samstarfi við háskóla eða aðra rannsóknastofnun í öðru norrænu ríki en heimalandi, þar sem vinna skal í tvö og hálft af þremur starfsárum verkefnisins.
Styrkir Norrænu útgáfunefndarinnar um hug- og félagsvísindatímarit (NOP-HS) til tímarita
Útgefendur tímarita um hug- og félagsvísindi geta árlega sótt um styrki til Norrænu útgáfunefndarinnar um hug- og félagsvísindatímarit (NOP-HS). Umsækjendur geta verið norræn hug- og félagsvísindaleg tímarit, þar sem ritstjórn og dreifing er norræn og sem rituð eru af norrænum greinahöfundum og áskrifendur eru norrænir.
Styrkir til norrænna verkefna á sviði menningar, tungumála og menntunar
Samstarfsnefnd um fræðslu um Norðurlönd erlendis hefur það að markmiði að efla kennslu í norrænum tungumálum og menningu við erlenda háskóla.
Nýsköpunarstyrkir Nordforsk
Nordforsk veitir nýsköpunarstyrki til rannsókna á Norðurlöndum og í Eystrasaltsríkjunum. Markmiðið er að efla og styrkja öndvegisrannsóknir sem eru á byrjunarreit. Miðað er að því að finna og styðja við vísindarannsóknir og -frumkvæði sem eru líkleg til að þróast og verða að öndvegisrannsóknum. Hugmyndin byggir á því að þróa nýjar hugmyndir með tiltölulega takmörkuðu fjármagni, þar til þær eru það langt komnar að þær eigi kost á fjármagni frá öðrum. Þeir sem stunda rannsóknir á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum geta sótt um styrkina. Þátttakendur í verkefnunum skulu vera frá þremur norrænum ríkjum , eða frá tveimur norrænum ríkjum og einu Eystrasaltsríki hið minnsta.
Styrkir Nordforsk til rannsóknanámskeiða
Nordforsk býður styrki til rannsóknanámskeiða á Norðurlöndunum og í Eystrasaltsríkjunum þremur. Markmiðið er að bjóða rannsóknamenntun á sviðum, sem rannsóknaumhverfið í hverju landi fyrir sig hefur ekki bolmagn til að fjármagna námskeið hvert fyrir sig
Styrkir Nordforsk til tengslaneta rannsóknaskóla í þjóðlöndunum
Nordforsk vill efla tækifæri til þess að rannsóknaskólar á Norðurlöndunum geti unnið saman á norrænum vettvangi. Markmiðið er að hvetja til þess að skólarnir skiptist á hugmyndum og færni, að efla hreyfanleikann og styrkja Norðurlöndin sem eitt svæði hvað varðar vísindamenntun. Rannsóknaháskólar geta sótt um styrki, þátttaka tveggja rannsóknaháskóla í tveimur mismunandi löndum, hið minnsta, er skilyrði fyrir þvi að verkefnið geti hlotið styrk.
NORDITA: Vísindaáætlanir
Vísindaáætlanir Nordita eru vinnustofur þar sem takmarkaður fjöldi vísindamanna vinnur saman að ólíkum verkefnum í fjórar til sex vikur.
NIAS SUPRA áætlunin - Aðgangur stúdenta að Asíu
NIAS SUPRA - Stuðningsáætlun um Asíurannsóknir er tengslanet nemenda á Norðurlöndum sem stunda nám í Asíufræðum. Áætlunin veitir styrki og akademíska þjónustu.