Document Actions

Nordplus rammaáætlun 2012-2016

Mannaskipti - Tengslanet - Verkefni

Nordplus er menntaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar. Nordplus er rammáætlun með fjórum undiráætlunum sem eru ætlaðar ólíkum markhópum frá skólum til æðri menntastofnana.

Áætlunin styrkir mannaskipti, verkefni og tengslanet og er opin stofnunum, samtökum og öðrum sem hafa menntun og símenntun að meginmarkmiði eða starfa á þessu sviði.

Nordplus nær til norrænu ríkjanna fimm auk sjálfstjórnarsvæðanna þriggja og Eistlands, Lettlands og Litháen.

Undir Nordplus rammaáætlunina falla:

  • Nordplus þveráætlun
  • Nordplus Junior (grunnskóli)
  • Nordplus æðri menntun
  • Nordplus fullorðinsfræðsla
  • Nordplus Norræn tungumál

Nordplus-skrifstofa er í öllum norrænu ríkjunum. Nordplus-skrifstofurnar í Noregi, Svíþjóð, Finnlandi og Danmörku bera hver um sig ábyrgð á einni undiráætlun og eru samábyrgar fyrir hinum. Nordplus tungumál og menning fellur ekki undir rammaáætlunina en henni er stjórnað af Íslendingum.

Umsóknarfrestur er 1. mars ár hvert.

Nánari upplýsingar og umsóknir, ásamt upplýsingum um Nordplus skrifstofurnar í þjóðlöndunum á vefsíðu Nordplus

Tengiliður

Sigrun E. Petersen
Sími: +45 33 96 02 45
Tölvupóstur: