Markmiðið með samstarfsáætlun Norðurlanda og Rússlands um æðri menntun og rannsóknir er að stuðla að fjölbreyttu samstarfi á sviði menntunar og rannsókna, til að efla sjálfbæra, félagslega og efnahagslega þróun í Rússlandi og á Norðurlöndum.
Með styrkjum til samstarfsverkefna á sviði æðri menntunar og rannsókna, milli mennta- og rannsóknastofnana, er miðað að því að hvetja til langtíma samstarfs sem muni bæta bein tengsl milli stofnananna.
Með því að vinna að ofangreindum markmiðum verður samstarfið fjölþjóðlegt á sviði þjálfunar á vel menntuðum sérfræðingum, skiptináms námsmanna og doktorsnema og samstarf verður milli háskóla auk þess að stuðlað verður að sameiginlegum verkefnum og nýsköpun.
Norræna ráðherranefndin og menntamálaráðuneytið í Rússlandi fjármagna áætlunina.
Norwegian Centre for International Cooperation in Education (SIU) hefur umsjón með áætluninni fyrir hönd Norrænu ráðherranefndarinnar. SIU sér um menntahluta áætlunarinnar í samstarfi við aðrar norrænar skrifstofur, en NordForsk sér um rannsóknahlutann.
Umsjón með rússneska hluta áætlunarinnar hefur mennta- og vísindaráðuneytið í Rússlandi.
Nánari upplýsingar:
Rússland, Danmörk, Noregur, Ísland, Svíþjóð, Grænland, Álandseyjar, Finnland, Færeyjar
Ráðherranefnd um menntun og rannsóknir Miðstöð um alþjóðavæðingu æðri menntunnar