Document Actions

Vinnuhópar og nefndir

Norrænt tengslanet um fullorðinsfræðslu (NVL)
Tengslanetið vinnur að því að auka sýnileika færni og reynslu af fullorðinsfræðslu á Norðurlöndunum.
Samstarfsnefndin um Norðurlandakennslu erlendis
Samstarfsnefndin um Norðurlandakennslu erlendis miðar að því að efla kennslu í Norðurlandamálum, um norræna menningu og samfélagsaðstæður auk þess að stuðla að því að efla áhuga erlendra háskóla og samfélaga almennt á Norðurlöndunum. Nefndin, sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina, styrkir norræna viðburði sem kennarar við stofnanirnar eiga frumkvæði að.
Norræna samstarfsnefndin um læknisfræðilegar rannsóknir (NOS-M)
NOS-M er samstarfsvettvangur norrænu rannsóknaráðanna sem fjármagna læknisfræðilegar rannsóknir.
Norræna samstarfsnefndin um félagsvísindarannsóknir (NOS-H)
NOS-H sér um rannsóknaáætlanirnar "Explorative Workshops" og "NORDCORP"
Norræna útgáfunefndin um hugvísindatímarit (NOP-H)
Nefndin er samstarfsvettvangur rannsóknaráða í Danmörku, Finnlandi, Noregi og Svíþjóð sem bera ábyrgð á hug- og félagsvísindarannsóknum.
Sérfræðingahópur Norræna tungumálaráðsins (ENS)
Sérfræðingahópur Norræna tungumálaráðsins veitir ráðgjöf og leggur sérstaka áherslu á að auka tungumálaskilning barna og unglinga.
Norræna samstarfsnefndin um náttúruvísindi (NOS-N)
Norræna samstarfsnefndin um náttúruvísindi er samstarfsvettvangur norrænna rannsóknaráða sem fjármagna rannsóknir innan náttúruvísinda.

 

Tengiliður

Tove Mangset
Sími: +45 33 96 02 72
Tölvupóstur: