Styrkir til norrænna verkefna á sviði menningar, tungumála og menntunar
Samstarfsnefnd um fræðslu um Norðurlönd erlendis hefur það að markmiði að efla kennslu í norrænum tungumálum og menningu við erlenda háskóla.
Nefndin fylgist með þróun á sviðinu, stuðlar að samstarfi milli kennara, hvetur til aukins áhuga og styður samstarfið með því að veita styrki til að mynda til svo nefnds "Lektorsinitiativ" sem felst í norrænum viðburðum sem háskólakennarar eiga frumkvæði að, með það að markmiði að efla norræna samkennd.
Styrkir eru veittir til fjölbreyttra menningarverkefna, ráðstefnuhalds og upplýsingamiðlunar þar sem Norðurlöndin eru kynnt. Meðal þess sem styrkt er eru gestafyrirlestrar, kvikmyndasýningar, heimsóknir rithöfunda o.s.frv. Samstarfsnefnd um fræðslu um Norðurlönd erlendis er samstarfsvettvangur sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina. Nefndin heldur árlega ráðstefnu fyrir norræna lektora á tilgreindum tungumálasviðum og um upplýsingamiðlun.
Stofnun Sigurðar Nordal, sem heyrir undir stofnun Árna Magnússonar, rekur skrifstofu fyrir tengslanet Samstarfsnefndar um fræðslu um Norðulönd erlendis .
Umsóknareyðublöð og nánari upplýsingar fást á Nordplus á vefsíðunni Lektorpulje for udenlandslektorer.
Tengd stofnun
