Document Actions

Um Norrænu ráðherranefndina um jafnréttismál (MR-JÄM)

Sameiginleg menning, saga og lýðræðislegar hefðir Norðurlandanna hefur gert okkur kleift að þróa náið og uppbyggjandi samstarf um jafnréttismál.

Jafnrétti felur í sér jafna dreifingu á völdum, umönnun og áhrifum, að konur og karlar njóti sömu réttinda, beri sömu ábyrgð og hafi jöfn tækifæri á öllum sviðum í lífinu.

Jafnrétti felur einnig í sér kröfu um samfélag sem ver einstaklinga gegn kynbundnu ofbeldi.

Ef samfélagið á að byggja á jafnrétti og réttlæti, er nauðsynlegt að setja megin stefnu um jafnrétti, sem nær til bæði kvenna og karla.

Samstarfi norrænu ríkisstjórnanna um jafnréttismál er stýrt af jafnréttisráðherrunum, en þeir sitja í Ráðherranefnd um jafnréttismál (MR-JÄM).

Ráðherrarnir funda að minnsta kosti einu sinni á ári. Þar ræða þeir saman og taka sameiginlegar ákvarðanir á sviðum þar sem norrænt samstarf er árangursríkara en þegar unnið er að málefnum í hverju landi fyrir sig, þetta köllum við norrænt notagildi.

Í Embættismannanefndinni um jafnréttismál (ÄK-JÄM) sitja fulltrúar frá öllum Norðurlöndunum og sjálfstjórnarsvæðunum, nefndin fundar að minnsta kosti þrisvar á ári. Embættismannanefndin stýrir starfinu og undirbýr fundi ráðherranna.

Skrifstofan í Kaupmannahöfn sér um dagleg störf og framkvæmd norræna ríkisstjórnasamstarfsins.

Það er menningar-, laga- og jafnréttisdeild skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar, sem undirbýr málefni sem tekin eru upp meðal annars í Ráðherranefnd um jafnréttismál. Skrifstofan sér einnig um að koma ýmsum málum sem samþykkt hafa verið í framkvæmd.

Ráðherranefndin er einnig í samstarfi við grannsvæðin, þ.e. Eystrasaltsríkin, Norðvestur-Rússland, Norðurskautssvæðið og Barentshafssvæðið.

Norrænu jafnréttisráðherrarnir funda með starfsystkinum sínum frá Eistlandi, Lettlandi og Litháen annað hvert ár, til að ræða sameiginlegar áherslur, annað samstarf er unnið í embættisnefndum landanna. Samstarfið miðar sérstaklega að baráttu gegn mansali sem felur í sér kynferðislega misnotkun.

Norrænt samstarf á jafnréttissviðinu felst einnig í alþjóðlegu samstarfi, til að mynda þátttöku í árlegum fundum í. Kvennanefnd Sameinuðu þjóðanna (CSW) [en].

Markmið og framtíðarsýn

Norræna jafnréttissamstarfið byggir á viðamikilli, pólitískri samstarfsáætlun sem sett hefur verið fyrir árin 2006 - 2010. Til viðbótar er framkvæmdaáætlun gerð árlega.

Framtíðarsýnin felur í sér að norræna samstarfið á jafnréttissviðinu skulu verða það besta í heiminum og vera fyrirmynd annarra landa. Norræn jafnréttisstefna á að hafa þýðingu fyrir þróunina á Norðurlöndum, innan ESB og á öðrum alþjóðlegum vettvangi, þar sem Norðurlöndin eru þátttakendur.

Markmiðið með samstarfi Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna er að framkvæma og vinna saman að málefnum sem verða meira virði í samstarfinu en ef þau væru unnin í löndunum hverju fyrir sig.

Áherslur og árangur

Ráðherranefndin skal vinna áfram að því að samþætta kynja- og jafnréttissjónarmið á öllum sviðum samfélagsins.

Fram til ársins 2010 leggur ráðherranefndin áherslu á tvö meginþemu í samstarfinu: Kynferði og völd og kynferði og ungt fólk Kynferði og völd fjallar meðal annars um:

  • að fjölga konum í stjórnunarstöðum innan atvinnulífsins og í stjórnmálum
  • að hafa áhrif á karla þannig að þeir taki þátt í ólaunuð störfum
  • að þróa kerfi til að auðvelda samþættingu starfsframa og einkalífs
  • að stöðva ofbeldi gegn konum, þar með talið ofbeldi tengt heiðri og kúgun
  • að styrkja aðgerðir gegn mansali í samstarfi við grannríki Norðurlandanna
  • að stofna samtök um að auka jafnrétti hjá þjóðarbrotum og minnihlutahópum

Þemað kynferði og ungt fólk miðar að því að breyta staðalímynd ungs fólks um jafnrétti og kynjahlutverk, breyta námsvali drengja og stúlkna og efla jafnrétti innan íþróttanna.

Tengt efni
  • Borgara- og neytendanefndin (Samtök)

    Borgara- og neytendanefndin fjallar um málefni sem snerta réttindi borgaranna og neytenda auk meginþátta sem snerta lýðræði, mannréttindi, jafnrétti o.fl. og sem tengjast starfsvettvangi hennar.


 

Tengiliður

Anne-Marie Jarnelind Münter
Sími: +45 33 96 02 00
Tölvupóstur: