Document Actions

„Jafnrétti kynjanna – Norræna leiðin” viðburður Norrænu ráðherranefndarinnar í tengslum við kvennaráðstefnu Sameinuðu þjóðanna

Öflugt hagkerfi er nauðsynlegt öllum þjóðum sem vilja þróa sjálfbært velferðarþjóðfélag. Nútíma þjóðfélög þurfa að nýta krafta allra, óháð kyni, fötlun, kynþætti, trú, aldri og kynhneigð. Norrænt samstarf hefur á undanförnum 30 árum unnið að jafnrétti kynjanna og náðum miklum árangri. Norðurlöndin einkennast af öflugum velferðarþjóðfélögum. Við öðluðumst hagsæld vegna þess að við þróuðum velferðarríkið. Velferðarþættir eins og fæðingarorlof, dagheimili og umfangsmikil heilbrigðis- og umönnunarþjónusta er nauðsynleg svo hægt sé að skapa atvinnutækifæri og gera fólki kleyft að vinna. Norðurlöndin hafa einnig tryggt jafnan rétt kvenna og karla með löggjöf. Konur verða að hafa jafnan aðgang að fjármagni og tækifærum. Þetta á við jafnt á strjálbýlum svæðum sem og í þéttbýli. Konur geta stuðlað að aukinni framleiðni og þróun samfélagsins í heild sinni. Til þess að minnka aðstöðumun kynjanna, er nauðsynlegt að móta stefnu sem leiðréttir mismunun kynjanna. Þjóðfélagsbreytingar verða að stjórnast af pólitískum vilja og ákvörðunum. Við munum ekki öðlast raunverulegt jafnrétti án þess að viðurkenna að jafnrétti kynjanna snýst einnig um karla. Karlar verða að taka þátt í jafnréttisverkefnum því það mun bæta líf þeirra og vegna þess að sífellt fleiri konur eru í stöðum þar sem þær hafa vald til þess að breyta þjóðfélaginu. Á undanförnum árum hafa orðið miklar breytingar á hlutverkum karla, sérstaklega í uppeldismálum. Rannsóknir sýna að feður mynda nú sterkari tengsl við börn sín. Einnig má sjá að þátttaka karla á heimilinu stuðlar að auknu jafnrétti kynjanna á vinnustað.

Hefst
29/02 2012 13:15
Endar
29/02 2012 14:45