Norræna ráðherranefndin. Þrátt fyrir að nafnið gefi annað til kynna fer samstarfið fram í mörgum ráðherranefndum (MR). Árlega funda flestir norrænu ráðherrarnir í ráðherranefnd sinni, einu sinni til fimm sinnum.
Embættismannanefnd er tengd hverri ráðherranefnd. Í embættismannanefndinni sitja opinberir starfsmenn landanna.
Þeir eru staðgenglar ráðherranefndarinnar og undibúa og fylgja eftir málefnum hennar. Embættismannanefndir funda allt að tíu sinnum á ári.
Jafnframt eru oft skipaðir vinnuhópar um sérstök málefni sem heyra undir viðkomandi ráðherranefnd/embættismannanefnd.
Oft unnið samkvæmt stefnu sem sett hefur verið til margra ára í ráðherranefndum og embættismannanefndum. En auk þess að fylgja stefnu er einnig unnið samkvæmt formennskuáætlun sem mörkuð er eitt ár í senn.
Formennskuáætlun hefur mikil áhrif á störf ráðherra- og embættismannanefnda og á það hvaða mál eru efst á baugi hverju sinni. Löndin skiptast á að fara með formennsku í ráðherra- og embættismannanefndum eitt ár í senn.