Styrkjaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir frjáls félagasamtök á Eystrasaltssvæðinu
Frjáls félagasamtök gegna mikilvægu hlutverki í samstarfi Norrænu ráðherranefndarinnar við Eystrasaltsríkin og Norðvestur-Rússland, til að mynda í umhverfismálum og lýðræðisþróun, en einnig við uppbyggingu tengslaneta og samstarfs þvert á landamæri á Eystrasaltssvæðinu.
Haustið 2008 samþykktu norrænu samstarfsráðherrarnir nýjar reglur um samstarfið við Norðvestur-Rússland og Eystrsaltsríkin, fyrir tímabilið 2009-2013. Í þessum reglum kemur fram að frjáls félagasamtök gegna lykilhlutverki í samstarfinu við Norðvestur-Rússland og Eystrasaltsríkin.
Upphaflega stofnsetti Norræna ráðherranefndin áætlun um frjáls félagasamtök árið 2006 til þess að auka samstarfið milli frjálsra félagasamtaka á Norðurlöndum, í Eystrsaltsríkjunum, Póllandi, Hvíta-Rússlandi og Rússlandi og síðan þá hafa rúmlega 40 verkefni á sviði umhverfismála, umönnunar barna og annarra viðkvæmra hópa og lýðræðisþróunar, hlotið meira en 17 milljónir danskra króna í styrki.
Norræna ráðherranefndin auglýsir nú eftir nýjum umsóknum til þessa málaflokks og er umsóknarfrestur til 23. mars næstkomandi.
Fáanlegt í eftirfarandi löndum
Rússland, Hvíta-Rússland, Danmörk, Noregur, Eistland, Ísland, Svíþjóð, Grænland, Lettland, Litháen, Álandseyjar, Finnland, Poland, Færeyjar
Fjármagnað af
Umsjónarmaður
