- Info
Norðurlönd í brennidepli
Norðurlöndin í brennidepli fjalla um mál á döfinni þjóðlöndunum út frá norrænu sjónarhorni. Skrifstofur Norðurlandanna í brennidepli, Norden i Fokus, standa fyrir námskeiðum og sýningum um mál á döfinni sem varða stjórnmál, umhverfismál, atvinnulíf og menningu. Markhópar skrifstofunnar eru embættismenn, stjórnmálamenn, blaða- og fréttamenn og hagsmunasamtök.
-
Upplýsingaskrifstofan Norðurlönd í brennidepli í Reykjavík
-
Markmið upplýsingaskrifstofunnar Norðurlönd í brennidepli í Reykjavík er að auka þekkingu og athygli á Norðurlöndum og opinbera norræna samstarfinu með því að halda námstefnur, umræðufundi og fl.. Norðurlönd í brennidepli í Reykjavík er í Norræna húsinu í Reykjavík, skrifstofan leggur sérstaka áherslu á menningu.
-
Upplýsingaskrifstofan Norden i Fokus í Stokkhólmi
-
Norden i Fokus (Norðurlönd í brennidepli) er upplýsingaskrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar í Stokkhólmi. Markmiðið með skrifstofunni er að auka áhuga og þekkingu á Norðurlöndunum og opinberu norrænu samstarfi. Upplýsingaskrifstofan stendur fyrir námskeiðum um málefni sem eru á döfinni jafnt innan stjórnmála, atvinnulífs og á menningarsviðinu.
-
Norðurlönd í brennidepli - Danmörk
-
Verkefni upplýsingaskrifstofunnar Norden i Fokus, er að efla áhuga og þekkingu á Norðurlöndum og opinberu norrænu samstarfi.
-
Norðurlönd í brennidepli - Noregi
-
Norðurlöndum í brennidepli í Noregi er ætlað að vekja athygli og auka þekkingu á Norðurlöndum og opinberu norrænu samstarfi.
-
Norðurlönd í brennidepli - Finnlandi
-
Norðurlönd í brennidepli í Finnlandi eru hluti af Norrænu menningargáttinni í Helsinki. Skrifstofa Norðurlanda í brennidepli heldur námstefnur, umræðufundi, fyrirlestra og sýningar um málefni sem efst eru á baugi t.d. á sviði stjórnmála, umhverfismála, atvinnumála og menningar.