Eyrarsundsbrú = Eyrarsundsborgarar?
Í tilefni af 10 ára afmæli Eyrarsundsbrúarinnar býður Upplýsingaskrifstofan Norden i fokus í samstarfi við Eyrarsundsnefndina til umræðufundar um framtíð Eyrarsundssvæðisins. Fundurinn verður haldinn í Fællessalen í Kristjánsborgarhöll. Meðal frummælenda verður sænski sagnfræðingurinn Gunnar Wetterberg, sem vakið hefur upp miklar umræður með hugmyndum sínum um norrænt samstarfsríki, sem hann birti í dagblaðinu Dagens Nyheter. Hann mun kynna "raunhæfa draumsýn" sína og ræða um málið við Cristina Husmakr Pehrsson, sem er norrænn samstarfsráðherra Svíþjóðar, Mikael Stamming framkvæmdastjóra Eyrarsundsnefndarinnar og Halldór Ásgrímsson framkvæmdastjórna Norrænu ráðherranefndarinnar. Þátttakendur í umræðum undir yfirskriftinni "Samskiptabrú eða brestur" verða þau Finn Hansen yfirmaður Breve Danmark og fulltrúi í stjórn Posten Norden, Jacob Hedebrink framkvæmdastjóri Copydan Kabel-TV, Pia Kinhult svæðisstjóri á Skáni og fulltrúi Svíþjóðar í vettvangi um stjórnsýsluhindranir og Henrik Dam Kristensen þingmaður og fulltrúi í borgara- og neytendanefnd Norðurlandaráðs.
