Um Norrænu samstarfsnefndina
Norræna ríkisstjórnarsamstarfið er undir stjórn og á ábyrgð forsætisráðherra Norðurlandanna. Umsjón með starfinu er þó á höndum norrænu samstarfsráðherranna. Norræna samstarfsnefndin sér um framkvæmd og samræmingu starfsins í umboði norrænu samstarfsráðherranna.
Í Norrænu samstarfsnefndinni (NSK), sem sér um framkvæmd og samræmingu opinbera, pólitíska norræna samstarfsins sitja hátt settir ríkisstarfsmenn frá allra norrænu ríkjanna. Ríkisstarfsmenn frá sjálfstjórnarsvæðunum Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum sitja einnig í samstarfsnefndinni.
Samstarfsnefndin er einnig stjórn ráðherranefndarinnarí Kaupmannahöfn. Nefndin undirbýr og fylgir eftir málum sem samstarfsráðherrarnir hafa tekið ákvarðanir um.
Samstarfsnefndin fundar yfirleitt 8 til 10 sinnum á ári og á formennskuári er formennska á höndum fulltrúa þess lands sem fer með formennsku í ráðherranefndinni hverju sinni. Norðurlöndin skiptast á að fara með formennsku í norræna ríkisstjórnasamstarfinu, eitt ár í senn.
Samstarfsskrifstofur samstarfsskrifstofur eru reknar á öllum Norðurlöndunum og á sjálfstjórnarsvæðunum en þær sjá um að samræma starfið milli ráðherranefndarinnar (samstarfsráðherranna) og stjórnsýslu þjóðlandanna.
