Norrænar upplýsingaskrifstofur
Verkefni Norrænu upplýsingaskrifstofanna felast í því að samræma norrænt starf á þeim svæðum sem þær starfa á, veita upplýsingar um norrænt samstarf og vera svæðisskrifstofa fyrir Norrænu félögin.
-
Um norrænu upplýsingaskrifstofurnar
-
Verkefni norrænu upplýsingarskrifstofanna er að samræma norrænt starf á hverju svæði fyrir sig, veita upplýsingar um norrænt samstarf og vera svæðisskrifstofur fyrir Norrænu félögin.
-
Norræna upplýsingaskrifstofan á Akureyri
-
Mikil áhersla er lögð á ungmennastarfið. Norræna upplýsingaskrifstofan á samstarf við önnur félög og stofnanir um tungumálakennslu, sýningar, námskeið, leshringi og annað menningarstarf.
-
Norræna upplýsingaskrifstofan í Gautaborg
-
Upplýsingaskrifstofan er rekin í samstarfi við skrifstofu Norræna félagsins í Gautaborg og Västra Götaland héruðin. Upplýsingaskrifstofan vinnur fyrst og fremst að afmörkuðum verkefnum en leggur einnig áherslu á að auka samstarf Vestur-Svíþjóðar, Suður-Noregs og Norður-Jótlands.
-
Norræna upplýsingaskrifstofan í Jyväskylä
-
Norræna upplýsingaskrifstofan í Jyväskylä er jafnframt ein af tólf svæðisskrifstofum Norræna félagsins í Finnlandi og ræðismannsskrifstofa Svíþjóðar . Starfssvæði skrifstofunnar er mið-Finnland. Á því svæði eru 30 sveitarfélög með um 265.000 íbúum. Um 95% íbúanna tala finnsku og nokkur hundruð tala sænsku.
-
Norræna upplýsingaskrifstofan í Norður-Noregi
-
Verkefnissvið Norrænu upplýsingaskrifstofunnar í Alta felast í norrænu menningarsamstarfi, samstarfi við atvinnulífið og í pólitísku samstarfi á Barentssvæðinu Skrifstofan er staðsett á samasvæðinu í Noregi og hefur náið samstarf við og um samískt samstarf í norrænu samhengi.
-
Norræna upplýsingaskrifstofan í Vasa
-
Norræna upplýsingaskrifstofan í Vasa er jafnframt ein af tólf svæðisskrifstofum Norræna félagsins í Finnlandi. Starfsemi skrifstofunnar nær til svæða í Austurbotni; Mið-Austurbotns og Suður-Austurbotns. Skrifstofan veitir upplýsingar um norrænt samstarf, nordjobb og norræna sjóði jafnframt því að hafa umsjón með norrænum viðburðum og námskeiðum á svæðinu.
-
Norræna upplýsingaskrifstofan í Suður-Noregi
-
Skrifstofan miðlar upplýsingum um norrænt samstarf og tekur þátt í og á frumkvæði að samstarfsverkefnum á svæðinu. Starfssvæði skrifstofunnar er í suðurhluta Noregs og Agder hérað.
-
Norræna upplýsingaskrifstofan á Suður-Jótlandi
-
Skrifstofan miðlar norrænni menningu á landamærasvæðinu meðal annars með því að bjóða heim norrænum rithöfundum, með listsýningum, tónleikahaldi, leshópum og ferðalögum innan Norðurlanda. Jafnframt miðlar skrifstofan upplýsingum um Suður-Jótland til annarra norrænna ríkja.
-
Norræna upplýsingaskrifstofan í Umeå
-
Norræna upplýsingaskrifstofan í Umeå miðlar upplýsingum um norrænt samstarf og er þungamiðja norrænna samstarfsverkefna á svæðinu. Upplýsingaskrifstofan í Umeå er jafnframt svæðisskrifstofa Norræna félagsins í Vesturbotni, þar sem íbúar eru um 255.000.