Starfsreglur um samstarf Norrænu ráðherranefndarinnar við Norðvestur-Rússland
Norræna ráðherranefndin leggur mikla áherslu á náið samstarf við Rússland og þá sérstaklega svæðin í Norðvestur-Rússlandi. Samstarfið miðar að því að efla lýðræðislega þróun samfélagsins, styrkja tengsl þvert á landamæri ásamt því að bæta aðstæður fyrir efnahalgslegt samstarf og verslun. Önnur mikilvæg samstarfsverkefni fjalla um menntun, rannsóknir, nýsköpun og umhverfismál, loftlagsmál og orkumál. Norræna ráðherranefndin vill einnig með samstarfinu við Rússland, þróa Eystrasaltssvæðið sem kraftmikið svæði í Evrópu.
Starfsreglur Norrænu ráðherranefndainnar fyrir tímabilið 2009-2013, liggja til grundvallar samstarfinu við Norðvestur-Rússland og voru samþykktar af samstarfsráðherrunum haustið 2008.
Þau verkfæri sem Norræna ráðherranefndin nýtir í samstarfinu við Rússland eru meðal annars: Þekkingaruppbyggingar- og tengslanetaáætlunin, þátttaka í Norðlægu víddinni, samstarf við frjáls félagasamtök (NGO-programmet), samstarf á landamærasvæðum, samstarf í gegnum norrænar stofnanir ásamt samstarfi við önnur svæðisbundin samtök eins og Barentsráðið, Eystrasalstsráðið og Norðurskautsráðið.
Framkvæmt verkefna og annarra viðburða fer að mestu fram í gegnum upplýsingaskrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar í Pétursborg [en/ru] og í Kaliningrad [en/ru].
Upplýsingaskrifstofurnar starfa með skrifstofu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn að því að skilgreina þróunarmöguleika í samstarfi Norðurlandanna og Rússlands. Upplýsingaskrifstofurnar eiga einnig náið samstarf við norrænu sendinefndirnar.
Starfsreglur um samstarf Norrænu ráðherranefndarinnar við Norðvestur-Rússland 2009-2013
