Document Actions

Sækja um styrki

Listi yfir útboð og styrkjaáætlanir sem fjármagnaðar eru af samstarfsráðherrunum (MR-SAM).
Norræn framlög, styrkir og útboð
Norrænir og tvíhliða styrkir. Á listanum er yfirlit yfir styrki Norðurlandaráðs, Norrænu ráðherranendarinnar og undirstofnanna hennar, auk styrkja sem ætlaðir eru til norræns samstarfs.
Styrkir Norrænu ráðherranefndarinnar úr áætlun um sjálfbæra þróun á Norðurlöndunum 2009-2012
Norræna ráðherranefndin hefur veitt styrki til verkefna sem stuðla að framkvæmd norrænnar stefnu um sjálfbæra þróun á sviði; loftslagsmála og endurnýjanlegra orkugjafa; sjálfbærrar framleiðslu og neyslu; velferðarþjóðfélagsins; auk menntunar og rannsókna, þátttöku borgaranna og staðbundinnar sjálfbærnistefnu. Ekki verður auglýst eftur umsóknum um styrki á árinu 2012.
Styrkjaáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar fyrir frjáls félagasamtök á Eystrasaltssvæðinu
Frjáls félagasamtök gegna mikilvægu hlutverki í samstarfi Norrænu ráðherranefndarinnar við Eystrasaltsríkin og Norðvestur-Rússland, til að mynda í umhverfismálum og lýðræðisþróun, en einnig við uppbyggingu tengslaneta og samstarfs þvert á landamæri á Eystrasaltssvæðinu.
NORDBUK: Sækja um styrk
Norræna barna- og ungmennanefndin (NORDBUK) veitir styrki til félagasamstarfs og verkefna á sviði æskulýðsmála.
Sækja um styrk til Samstarfsáætlunar Norrænu ráðherranefndarinnar um norðurskautssvæðin
Samstarfsáætlun Norrænu ráðherranefndarinnar um norðurskautssvæðin úthlutar árlega um 8 milljónum danskra króna. Sækja má um styrki til Samstarfsáætlunar um norðurskautssvæðin til verkefna sem unnin eru á Norðuskautssvæðinu.
Norræn starfsmannaskipti
Í gegnum starfsmannaskiptin gefst ríkisstarfsmönnum kostur á að kynna sér stjórnsýslu í öðru norrænu landi/löndum en heimalandi. Hópur tengiliða frá öllum Norðurlöndunum, Færeyjum, Grænlandi og Álandseyjum skiptir árlegu framlagi milli norrænu ríkjanna og Færeyja, Grænlands og Álandseyja.