Upplýsingaþjónustan Halló Norðurlönd
Halló Norðurlönd er upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar. Markmiðið er að auðvelda hreyfanleika einstaklinga á milli Norðurlandanna. Á vefsíðunni eru reglur sem gilda fyrir þá sem flytja til, stunda nám eða starfa í norrænu ríkjunum. Einnig er hægt að senda in spurningar um sérstök mál á sænsku, dönsku, norsku, finnsku og íslensku.
Halló Norðurlönd reka upplýsingaskrifstofur í Svíþjóð, Danmörku, Noregi, Finnlandi, á Íslandi og Álandseyjum Krækjur á skrifstofurnar eru vinstra megin á síðunni.
Hægt er að senda spurningar til skrifstofanna á rafrænu eyðublaði sem er á vefsíðum um flutninga, nám og vinnu.
Halló Norðurlönd halda upplýsingafundi fyrir starfsmenn stjórnvalda til að upplýsa þá um þær reglur sem gilda fyrir einstaklinga sem flytja milli norrænu ríkjanna eða falla á annan hátt undir lög og reglur í meira en einu norrænu ríki.
Skrifstofur Halló Norðurlanda nota, m.a. í samstarfi við vettvang um afnám stjórnsýsluhindrana, upplýsingar um stjórnsýsluhindranir á Norðurlöndum sem berast frá einstaklingum til að vekja athygli stjórnmálamanna og embættismanna á vandamálum og mögulegum lausnum.
- Póstfang
-
Hallo Norden
Nordisk Ministerråd
Ved Stranden 18
1061 København K
Danmörk - Vefur
- http://www.norden.org/is/nordurloend-fyrir-thig
