Vettvangur um afnám stjórnsýsluhindrana
Vettvangurinn er pólitískur samstarfsvettvangur, sem norrænu ríkisstjórnirnar hafa falið að stuðla að frjálsri för innan Norðurlanda jafnt fyrir einstaklinga og fyrirtæki. Vettvangi um afnám hindrana er ætlað, í samstarfi við ríkisstjórnir landanna, að skilgreina, forgangsraða og leggja til lausnir á hindrunum milli landanna. Vinnunni stýrir skipaður formaður í samstarfi við framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar. Aðrir fulltrúar eru frá öllum norrænu ríkjunum ásamt Álandseyjum.
