Document Actions

Viðburðir tengdir afnámi kerfishindrana

Hvernig afnemum við stjórnsýsluhindranir á Norðurlöndum?
Dagsetning 31/10 2011 til 31/10 2011
Upplýsingaþjónusta Norrænu ráðherranefndarinnar, Halló Norðurlönd, býður til umræðufundar um stjórnsýsluhindranir á Norðurlöndum. Halló Norðurlönd kynnir ritið „Sagan af Jyrki og Jóhönnu", þar sem segir frá ýmsum vandamálum sem norrænir borgarar lenda í þegar þeir flytjast á milli norrænu ríkjanna. Halló Norðurlönd býður fulltrúum flokkahópa Norðurlandaráðs til fundarins til að ræða efni þessa rits. Hvaða hindranir er brýnt að afnema og hvernig förum við að því?
Formennska Finna í Norrænu ráðherranefndinni, Finnlandsvikan
Dagsetning 13/07 2011 til 15/07 2011
Finnlandsvikan, sem verður sambærileg við sænsku almedalsvikuna, verður haldin í Björneborg. Formennska Finna í Norrænu ráðherranefndinni verður kynnt á Borgaratorginu. Þar verður hægt að fá upplýsingar um tækifæri innan norræna samstarfsins hvað varðar búsetu, nám og störf og einnig hvernig unnið er að því að létta norrænum þegnum og fyrirtækjum lífið.
Stjórnsýsluhindranir á Norðurlöndum
Dagsetning 19/04 2012 til 19/04 2012
Ráðstefna um stjórnsýsluhindranir á sviði atvinnu- og félagsmála. Norðmenn, sem fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2012, halda áfram að fjalla um og leita lausna á stjórnsýsluhindrunum á sviði atvinnu- og félagsmála. Norrænu embættismannanefndirnar um atvinnulíf og heilbrigðis- og félagsmál hafa skipað sérfræðingahóp til að kortleggja stjórnsýsluhindranir á sviði atvinnu- og félagsmála. Niðurstöður skýrslu sérfræðingahópsins verða kynntar á þessari ráðstefnu um stjórnsýsluhindranir. Á rástefnunni verður rætt um mögulegar lausnir á þeim vandamálum sem stjórnsýsluhindranir valda og áframhaldandi afnám þeirra á sviði atvinnu- og félagsmála.
Fundur í forsætisnefnd, 17. febrúar 2010, Vilníus
Dagsetning 17/02 2010 til 17/02 2010
 
Umræða um stjórnsýsluhindranir á Álandseyjum
Dagsetning 20/04 2012 til 20/04 2012
 
Umræða um stjórnsýsluhindranir í Lögþinginu í Færeyjum
Dagsetning 20/04 2012 til 20/04 2012
 
Umræða um stjórnsýsluhindranir í Finnlandi
Dagsetning 25/04 2012 til 25/04 2012
 
Umræða um stjórnsýsluhindranir á Íslandi
Dagsetning 20/04 2012 til 20/04 2012
 
Umræða um stjórnsýsluhindranir í Noregi
Dagsetning 24/04 2012 til 24/04 2012
 
Umræða um stjórnsýsluhindranir í sænska þinginu
Dagsetning 11/04 2012 til 11/04 2012
 
Þemaumræður um stjórnsýsluhindranir í norrænu þjóðþingunum
Dagsetning 11/04 2012 til 25/04 2012
Á tímabilinu 11. - 25. apríl munu öll norrænu þjóðþingin stofna til þemaumræðna um stjórnsýsluhindranir.
Vöxtur og þróun á Eyrarsundssvæðinu
Dagsetning 07/02 2011 til 07/02 2011
Eyrarsundsnefndin og vettvangur um afnám hindrana ætlar að fara að ráði atvinnulífsins og efla samstarf og samþættingu á Eyrarsundssvæðinu . Boðið er því til ráðstefnunnar „Vöxtur og þróun á Eyrarsundssvæðinu". Skráning hjá clh@oresundskomiteen.dk
Vaxtartækifæri - hvers vegna Norðurlönd hafa ekki efni á stjórnsýsluhindrunum
Dagsetning 30/11 2011 til 30/11 2011
Á ráðstefnunni verður fjallað um ónýtt tækifæri í norrænu samstarfi, þar sem sjónum verður sérstaklega beint að reglum sem geta hindrað hagvöxt. Hvatning til framkvæmda fæst með því að skilgreina á hvaða sviðum eða í hvaða greinum tækifærin eru stærst og hindranir flestar.
Alþjóðleg ráðstefna í Pétursborg í Rússlandi
Dagsetning 28/09 2009 til 29/09 2009
Samstarf þvert á landamæri verður megin umfjöllunarefnið á alþjóðlegri ráðstefnu sem haldin verður í Pétursborg í Rússlandi dagana 28. -29. september, þátttakendur verða frá Rússlandi, Noregi og ESB.
Ráðstefna fyrir unga þingmenn og stjórnmálamenn í Vilníus
Dagsetning 03/06 2010 til 04/06 2010
Youth empowerment and young people’s participation in society - Tækifæri ungs fólks til að taka þátt í mótun samfélagsins verða í brennidepli á ráðstefnu Norðurlandaráðs fyrir unga þingmenn og stjórnmálamenn í Vilníus í Litháen. Frjáls för yfir landamæri, vegabréfsáritanir og áhrif ungs fólka í gegnum Netið og samskiptavefi eru nokkur þeirra mála sem fjallað verður um. Markmiðið er að skrifa ályktun sem svarar eftirfarandi spurningum: Hvernig má tryggja áhrif ungs fólks í samfélaginu, hverjar eru hindranirnar og getum við lært af reynslu hvers annars?
Ráðstefna um samstarf þvert á landamæri Norðurlandanna
Dagsetning 20/04 2010 til 20/04 2010
Ráðstefna um samstarf á landamærasvæðum, ferðalög til og frá vinnu og flutninga yfir landamæri á Norðurlöndum. Meðal þátttakenda eru Christina Husmark Pehrsson samstarfsráðherra Svíþjóðar og fulltrúar Öresund Direkt, landamæraþjónustunnar, sænskra sveitarfélaga og lénsþinga, samstarfsvettvangs um stjórnsýsluhindranir og framkvæmdastjórnar ESB.