Document Actions

Samstarfsráðherrarnir

Norrænu forsætisráðherrarnir bera ábyrgð á norræna ríkisstjórnarsamstarfinu. En þeir hafa falið norrænu samstarfsráðherrunum að fara með ábyrgðina.

Í raun eru það norrænu samstarfsráðherrarnir sem fyrir hönd forsætisráðherranna sjá um samræmingu á norræna ríkisstjórnarsamstarfinu.

Hvert land skipar samstarfsráðherra í ríkisstjórn, með eigið ráðuneyti, sem ber ábyrgð á samræmingu norræna ríkisstjórnarsamstarsins. Færeyjar, Grænland og Álandseyjar skipa einnig norræna samstarfsráðherra.

Stjórnun ríkisstjórnarsamstarfsins

Samstarfsráðherrarnir mynda stjórn norræna ríkisstjórnarsamstarfsins og taka stefnumótandi ákvarðanir. Ákvarðanir verða að vera einróma. Það á einnig við um ákvarðanir annarra ráðherranefnda.

Fundir eru yfirleitt haldnir 5 til 6 sinnum á ári í ráðherranefnd samstarfsráðherra, undir formennsku samstarfsráðherra þess lands sem fer með formennsku hverju sinni. Formennska í ráðherranefndinni Löndin skiptast á að fara með formennsku í ráðherranefndinni eitt ár í senn.

Á árlegum fundum Norðurlandaráðs , þing á haustin, er meðal annars fyrirspurnartími þar sem samstarfsráðherrar svara spurningum norrænna þingmanna, sem eru fulltrúar í Norðurlandaráði, um norræna samstarfið.

Tengiliður

Lene Frees
Sími: +45 33 96 03 26
Tölvupóstur: