Samstarfið við Vestur-Norðurlönd og grannríki Norðurlandanna í vestri er mikilsvert í norrænu samstarfi. Norrænu húsin í Færeyjum og á Íslandi eru ásamt Norrænu stofnuninni á Grænlandi mikilvægir þátttakendur í menningarsamstarfi á Vestur-Norðurlöndum.
Norræna ráðherranefndin (NMR) leggur áherslu á Vestur-Norðurlönd í norrænu samstarfi. Áherslan byggir á því grundvallarmati að þeð sé hagur Norðurlanda að efla samstarfið við Vestur-Norðurlönd.
Þema samstarfsins er náttúruauðlindir - ekki síst auðlindir hafsins, rannsóknir, menntun, heilbrigðismál, atvinnumál - eins og samgöngur, ferðaþjónusta, fjarskipti og vinnumarkaður, neytendavernd og menning auk myndunar tengslaneta á öllum sviðum. Að auki er lögð áhersla á samstarf við grannríki Norðurlanda í vestri.
Nánari upplýsingar um samstarfið eru í ritinu "Vest-Norden i det nordiske samarbejde" (2003), "Nordisk samarbejde i Vestnorden og med Vestnordens naboer" (2004) og í yfirlitsritinu "Vestnorden i det nordiske samarbejde - en status" (2005).
Sem dæmi um samstarfið má nefna skýrsluna "Västnordens ekonomiska relationer till det övriga Norden och dess betydelse för näringslivsutvecklingen i Västnorden" og ennfremur Norrænu húsin í Færeyjum og á Íslandi og Norrænu stofnunina á Grænlandi sem eru mikilvægar stoðir menningarsamstarfs á Vestur-Norðurlöndum, annars vegar í gegnum samstarf þessara þriggja stofnana og hins vegar í gegnum starf þessara stofnana við þróun tengslaneta á Vestur-Norðurlöndum og í nágrenni þeirra.
Menningarhúsin gegna samræmingarhlutverki á menningarsviðinu, en þau gætu einnig gegnt því hlutverki á öðrum sviðum.
Á formennskutíma Dana árið 2005 var haldin vinnustofa um hvert Evrópa stefndi í málefnum sjávar, m.a. með það að markmiði að gera Vestur-Norðurlöndum kleift að taka þátt í umræðunni.
Undanfarin áratug hefur Norðurlandaráð lagt sérstaka áherslu á málefni Vestur-Norðurlanda. Það hefur verið gert með vísun í þróun Eystrsaltssamstarfsins og hlutverks Norðurlandaráðs sem tengiliðs við Rússland almennt og sérstaklega við Norðvestur-Rússland, sem hefur haft í för með gott samstarf við „Austur-Norðurlönd".
Það er mikilvægt fyrir Norðurlandaráð að tengja norrænu ríkin og þess vegna m.a. var ráðið meðmælt ákvörðun Norræna menningarsjóðsins, að þegar vestnorrænt ríki eða svæði er þátttakandi í verkefni er nægilegt að hafa einn samstarfsaðila. Að öllu jöfnu er forsenda styrkveitinga frá Norræna menningarsjóðnum að þrjú norræn ríki taki þátt í verkefninu.
Ennfremur telur Norðurlandaráð að öflugt samstarf við Vestur-Norðurlönd sé ganglegt fyrir norrænt samstarf í heild sinni.
Norðurlandaráð vinnur með Vestnorræna ráðinu þegar um er að ræða mikilvæg málefni sem snúa að Vestur-Norðurlöndum. Á Norðurlandaráðsþingi hefur forseti Vestnorræna ráðsins rétt til að taka til máls og tekur hann venjulega virkan þátt í umræðum um mál sem tengjast Vestur-Norðurlöndum.