Document Actions

Viðburðir

Ráðstefna um samstarf milli Eystrasalts- og Norðurskautssvæðisins - hugmynd Stoltenbergs
Dagsetning 17/09 2010 til 17/09 2010
Hálfsdagsráðstefna um úrlausnarefni og stjórnun á Eystrasaltssvæðinu, Barentshafssvæðinu, Norðursvæðunum og á Norðurskautssvæðinu. Fjöldi mála er á dagskrá, þar á meðal orkuöryggi, nýting náttúruauðlinda, stjórnunartæki o.fl. Þátttaka er ókeypis en skráning er nauðsynleg. Frestur til að skrá sig á ráðstefnuna er 14. september 2010, skráning á: nor@um.dk Ráðstefnan er haldin í samstarfi Norrænu ráðherranefndarinnar, danska utanríkisráðuneytisins og Dönsku stofnunarinnar um alþjóðalegt nám (DIIS).
Fyrsta árlega málþingið um stefnu ESB á Eystrasaltssvæðinu, Tallin, 14.-15. október 2010
Dagsetning 14/10 2010 til 15/10 2010
Dagana 14.-15.október verður fyrsta árlega málþingið um Eystrsaltsstefnu ESB haldið. Þar verður gerð grein fyrir framgangi framkvæmdaáætlunarinnar og rætt um frekari þróun stefnunnar. Ráðherranefndin mun halda fund þar sem áhersla verður lögð á grænan hagvöxt.
Lausnir í nánd, saman - ráðstefna um sjálfbærni á Eystrasaltssvæðinu
Dagsetning 31/01 2011 til 02/02 2011
Tilgangur ráðstefnunnar er að tryggja samspil efnahags- og félagslegra sjónarmiða og umhverfissjónarmiða með það að markmiði að finna lausnir sem hagnast öllum jafnt svæðisbundnum stjórnvöldur, samféalginu og íbúum. Í dagskrá ráðstefnunnar verður sjónum beint að því hvernig þekking, hugmyndir, viðhorf og framleiðsla geta stuðlað að sjálfbærum ferlum.
ESB stefna fyrir Eystrasaltssvæðið, Evrópa 2020 og grænn hagvöxtur
Dagsetning 23/09 2010 til 23/09 2010
Námstefna um forgangsatriði Dana og áherslusvið, 23. september 2010 Á námstefnunni verður farið yfir Eystrasaltsstefnu ESB og rætt hvernig nýta má stefnuna til að framkvæma áhersluatriði sem tengjast nýjum markmiðum ESB (Evrópa 2020) - sem fjalla meðal annars um það hvernig samstarf á grannsvæðum getur styrkt samkeppnishæfni og græna hagvaxtarmöguleika, auk þess verður fjallað um hvað til þarf til að atvinnulífið takið aukin þátt í starfinu.
Eystrasaltsstefnan og innri markaðurinn, Tallinn
Dagsetning 16/02 2010 til 17/02 2010
Skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar í Eistlandi í samstarfi við utanríkisráðuneytið og efnahags- og samskiptaráðuneytið í Eistlandi og skrifstofu framkvæmdastjórnar ESB í Eistlandi halda ráðstefnu um Eystrasaltsstefnuna og innri markaðinn dagana 16. og 17. september 2010. Meðal annars verður þar fjallað um hvort Eystrasaltsstefnan geti stuðlað að því að afnámi stjórnsýsluhindrana og hraðað vinnu með þjónustu á netinu og innleiðingu þjónustutilskipana ESB.
Framkvæmd Eystrasaltsstefnu ESB í gegnum samræmt norrænt-evrópskt samstarf, Brussel
Dagsetning 29/06 2010 til 29/06 2010
Samstarf Norrænu ráðherranefndarinnar við framkvæmdastjórn ESB hefur leitt í ljós að takmörkuð þekking er á starfi ráðherranefndarinnar sumstaðar á Eystrasaltssvæðinu. Þetta gæti komið í veg fyrir samræmingu á svæðisbundnu, norrænu og evrópsku samstarfi og verkefnum og þar með takmarkað möguleika á framkvæmd markmiða Eystrasaltsstefnunnar. Byggt á ofangreindu ákvað ráðherranefndin í samstarfi við fulltrúa frá Eystrasaltssvæðinu (óformlegur Baltic Sea hópur, IBSG) og framkvæmdastjórn ESB - stjórnadeild byggðamála, að halda sameiginlega námstefnu í Brussel þann 29. júní 2010.
Leiðtogafundur Baltic Development Forum, Vilníus
Dagsetning 01/06 2010 til 02/06 2010
12. leiðtogafundur Baltic Development Forum var haldinn í Vilníus dagana 1.-2. júní 2010 undir yfirskriftinni „European Challenges – Regional Solutions, An Agenda for Jobs, Investments and Sustainable Growth”. Ráðherranefndin var sem fyrr mikilvægur þátttakandi og tók í þessu sambandi einnig þátt í fjármögnun árlegrar skýrslu „State of the Region Report”
Námstefna um Norðurlöndin og ESB - á nýrri leið?
Dagsetning 25/11 2009 til 25/11 2009
Geta Norðurlöndin styrkt þróun samstarfs í Evrópu í gegnum Eystrasaltsstefnuna? Hvernig á Danmörk, sem mun fara með formennsku í Norrænu ráðherranefndinni árið 2010, að tryggja það að Norðurlöndin verði sýnileg innan ESB? Hvaða þýðingu myndi aðild Íslands að ESB hafa fyrir norrænt og evrópskt samstarf?