Um skrifstofu Norrænu ráðherranefndarinnar
Skrifstofa Norrænu ráðherranefndarinnar í Kaupmannahöfn ber ábyrgð og hefur umsjón með daglegu starfi norræna ríkisstjórnarsamstarfsins. Á skrifstofunni eru undirbúin mál sem fjallað er um í 11 ráðherranefndum og embættismannanefndum. Skrifstofan ber einnig ábyrgð á því að ákvarðanir séu framkvæmdar.
Starfsemi skrifstofunnar er fjölbreytt og breytist eftir því hvaða ákvarðanir norrænu ríkisstjórnirnar taka um norræna samstarfið. Árið 2008 störfuðu tæplega 100 manns frá öllum Norðurlöndunum á skrifstofunn Norrænu ráðherranefndarinnar.
Halldór Ásgrímsson fyrrverandi forsætisráðherra Íslands tók við stöðu framkvæmdastjóra Norrænu ráðherranefndarinnar þann 1. janúar 2007.
Norræna ráðherranefndin var sett á laggirnar árið 1971. Skrifstofan hóf starfsemi árið 1972 og var formlega samþykkt af norrænu ríkisstjórnunum ári seinna.
Í upphafi var skrifstofu ráðherranefndarinnar var skipt í tvennt: Annars vegar var hún með starfsemi í Snaregade í Kaupmannahöfn, nálægt Kristjánsborgarhöll. Þar var unnið að öllum málum sem vörðuðu menningu, rannsóknir og menntun. Öll önnur starfsemi var síðan á skrifstofunni í Olavsgate í Ósló.
Framkvæmdastjóri for fyrir hvorri skrifstofu fyrir sig. Smám saman varð þetta fyrirkomulag þungt og dýrt og árið 1986 var ákveðið að sameina skrifstofunnar á einn stað, Store Strandstræde 18 í Kaupmannahöfn undir stjórn Fidtjov Clemet framkvæmdastjóra.
Í júli 2010 fluttu skrifstofurnar til Ved Stranden 18 í Kaupmannahöfn. Skrifstofur Norðurlandaráðs og Norræna menningarsjóðsins eru á sama stað.
