Document Actions

Um upplýsingasviðið

Norræna ráðherranefndin og Norðurlandaráð hafa frá árinu 1999 rekið sameiginlegt upplýsingasvið (KOMM), deildarstjóri upplýsingamála stýrir sviðinu. Á sviðinni starfa auk deildarstjórans upplýsingaráðgjafar, vefstarfsmenn, túlkar, þýðendur, útgáfustarfsmenn, skrifstofufólk, verkefnaráðnir starfsmenn og námsmenn í hlutastörfum. Störf þeirra felst í samskiptum og upplýsingagjöf fyrir Norðurlandaráð og Norrænu ráðherranefndina jafnt til skamms sem langs tíma.

Daglegt upplýsingastarf

Upplýsingaráðgjafarnir skrifa meðal annars fréttatilkynningar, sjá um fréttamannafundi, skrifa fréttir fyrir vefinn, rafræn fréttabréf og ársrit. Þeir vinna upplýsingaefni, eru í sambandi við blaðamenn og fjölmiðla á öllum Norðurlöndunum og sjálfstjórnarsvæðunum og sjá um að viðtöl séu tekin við norræna stjórnmálamenn.

Túlkun og þýðingar

Túlkar og þýðendur starfa einnig hjá upplýsingasviðinu (TOLK). Deildin sér um þýðingar á fundargögnum, skýrslum, textum á vefsíður og öðru efni. Fundir í Norðurlandaráði og Norrænu ráðherranefndinni fara fram á norrænum tungumálum. Á mörgum fundanna er því túlkað til og frá finnsku yfir á skandinavísku tungumálin. Einstaka sinnum er einnig túlkað til og frá íslensku. Fastráðnir eða sjálfstæðir túlkar sjá um túlkun.

Á fundum með alþjóðlegum samstarfsaðilum, eins og til að mynda Eystrasaltsráðinu, sem samsvarar Norðurlandaráði fyrir Eistland, Lettland og Litháen, eða á ráðherrafundum þar sem ráðherrar Norðurlandanna og Eystrasaltsríkjanna ræða saman er yfirleitt túlkað milli skandinavísku/finnsku og ensku og einstaka sinnum einnig rússnesku.

Útgáfa

Innan upplýsingasviðsin ereinnig rekin útgáfudeild (PUB). Útgáfudeildin sér um útgáfu á skýrslum og öðru skriflegu efni sem framleitt er í opinbera norræna samstarfinu. Skýrslurnar eru ritaðar á skandinavísku tungumáli eða ensku. Lítill hluti útgefins efnis hefur verið þýddur á finnsku eða önnur tungumál. Mikinn hluta útgefins efnis má nálgast ókeypis á vefsíðunni.

Ókeypis myndir

Ljósmyndari upplýsingadeildarinnar er starfsmaður útgáfudeildarinnar. Notkun ljósmyndanna er ókeypis, en taka skal fram að þær séu frá bilddatabasen.

Vefdeildin

Starfsmenn vefdeildarinnar hafa umsjón með rekstri vefsetursins www.norden.org og stöðugri þróun vefsíðunnar jafnt innihaldi, aðgengi og notendaviðmóti.

Starfsmenn upplýsingasviðsins eru frá öllum Norðurlöndunum. Það hefur í för með sér að hægt er að aðlaga upplýsingar að hverju landi fyrir sig, hvað varðar tungumál, menningu og mál sem eru á döfinni.


 

Tengiliður

Mette Højberg
Sími: +45 33960356
Tölvupóstur: