Document Actions

Viðburðir

Norrænar hagtölur 2009
Dagsetning 22/10 2009 til 22/10 2009
Í tilefni af útgáfu ritsins Norrænar hagtölur 2009 býður Norræna ráðherranenfdin til hádegisverðarfundar í Store Strandstræde 18, 1255 Kaupmannahöfn K. Marianne Jelved fullrúi rótækra vinstri flokksins í Danmörku og fyrrum efnahags- og samstarfsráðherra tekur þátt í fundinum og fjallar um nýjustu hagtölurnar frá dönsku sjónarhorni, sérstaklega með tilliti til stefnu Norrænu ráðherranefndarinnar hvað varðar sjálfbæra þróun. Blaðamaðurinn Trine Sick, sem starfaði áður hjá danska ríkisútvarpinu stýrir fundinum. Ulla Agerskov frá dönsku Hagstofunni, sem ritstýrði ritinu mun einnig taka þátt í fundinum.. Skráningu á fundinn lýkur þriðjudaginn 20. október kl. 14:00 skráning hjá: loha@norden.org.
Menningarnótt 2009
Dagsetning 09/10 2009 til 09/10 2009
Velkomin á menningarnótt hjá Norrænu ráðherranefndinni og Norðurlandaráði, en í ár verður boðið upp á íslenska menningu. Tvær söngkonur, Dísa frá Íslandi og danska söngkonan Aura, munu heilla áheyrendur með fallegri tónlist í rómanískum bakgarði okkar. Við bjóðum upp á norrænan mat og drykk. Njótið ferðar með norrænum hestvagni í kringum Kongens Nytorv, áður en þið kíkið inn hjá Norrænu ráðherranefndinni og Norðurlandaráði í Store Strandstræde 18.
Menningarnóttin 2012 í Kaupmannahöfn
Dagsetning 12/10 2012 til 12/10 2012
Í tilefni af formennsku Norðmanna í Norrænu ráðherranefndinni verður þema menningarnætur í Kaupmannahöfn norskt, að þessu sinni.
Nordic Cool 2013
Dagsetning 19/02 2013 til 17/03 2013
Norræn hátíð í Washington fyrir leikhús, dans, tónlist, sjónlist, bókmenntir, hönnun og kvikmyndir