Document Actions

Samstarfsstofnanir og aðrar stofnanir

Samstarfsstofnanir Norrænu ráðherranefndarinnar.
Um Svansmerkið
Svansmerkið er opinbert umhverfismerki Norðurlanda. Markmiðið er valfrjálst norrænt umhverfismerki, sem stuðlar að því að minnka það álag sem dagleg neysla veldur umhverfinu. Starfsmenn Svansmerkisins kanna umhverfisáhrif tiltekinnar vöru og þjónustu í gegnum allan feril hennar frá hráefni til úrgangs. Gerðar eru strangar loftslags- og umhverfiskröfur en einnig kröfur um notagildi og gæði.
Nordjobb
Markmiðið með Nordjobb er að auka þekkingu á Norðurlöndunum og auka þekkingu á tungumálum og menningu á Norðurlöndunum með því að bjóða ungu fólki á aldrinum 18 til 28 ára sumarstörf í öðru norrænu landi en heimalandinu eða á einu sjálfstjórnarsvæðanna.
Norræn nefnd um hagtölur um heilbrigðis- og félagsmál (NOSOSKO)
NOSOSKO hefur umsjón með samræmingu á hagtölum í norrænu ríkjunum. Auk þess gerir nefndin samanburðargreiningu og lýsingu á umfangi og innihaldi félagslegra aðgerða.
Norræn nefnd um staðtölur um heilbrigðismál (NOMESKO)
NOMESKO er norræn nefnd um staðtölur um heilbrigðismál sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina og er fjármögnuð af Norrænu hagstjórnarnefndinni. Nefndin ber meðal annars ábyrgð á því að samræma staðtölur um heilbrigðismál á Norðurlöndunum.
Norræn stofnun um fræðilega eðlisfræði
NORDITA er norræn stofnun um fræðilega eðlisfræði. Á vegum stofnunarinnar eru stundaðar rannsóknir sem efla eiga norrænt samstarf á sviði fræðilegrar eðlisfræði.
Norræn stofnun um rannsóknir í hreindýrarækt (NOR)
NOR er stofnun sem hefur það að markmiði að efla samstarf norrænna hreindýraræktenda og - rannsakenda auk þess að stuðla að því að vísindamenn, hreindýraræktendur og eigendur hittist til að miðla þekkingu sín á milli.
Norræn stofnun um siglingalöggjöf
Akademískir starfsmenn stofnunarinnar vinna að fjölda verkefna sem tengjast einka- og opinberri löggjöf, með sérstöku tilliti til siglinga og flutningalöggjafar, tryggingalaga, og olíu og orkulöggjafar.
Norræna Atlantshafssamstarfið (NORA)
NORA er nefnd undir samstarfsverkefni Norrænu ráðherranefndarinnar um byggðamál. Tengslin við Norðurlönd og verkefnisstýrt vinnulag gerir NORA að tilvöldum vettvangi fyrir alþjóðlegt samstarf, sem byggir á norrænum gildum og markmiðum.
Norræna blaðamannamiðstöðin
Norræna blaðamannamiðstöðin vinnur að því að skapa og viðhalda áhuga í fjölmiðlum á norrænni samkennd og sameiginlegri menningu. Til að ná markmiðinu eru haldin námskeið, námstefnur og aðrir viðburðir sem miða að færniuppbyggingu.
Norræna eldfjallastöðin (NORDVULK)
Markmið stofnunarinnar er að stunda eldfjallarannsóknir með megináherslu á eldvirkni og jarðhreyfingar og tengd svæði.
Norræna ráðið um málefni fatlaðra
Ráðið er stefnumarkandi og ráðgefandi fyrir Norrænu ráðherranefndina, ráðið sér til þess að mikilvæg málefni fatlaðra séu tekin á dagskrá jafnt á norrænum vettvangi og í hverju landi fyrir sig.
Norræna Samastofnunin (NSI)
Sámi allaskuvla / Sámi University College er samísk mennta- og rannsóknastofnun, sem stendur vörð um og þróar samísk tungumál, menningu og samfélagslíf út frá samískum sjónarmiðum.
Norræna stofnunin um Asíurannsóknir (NIAS)
Markmiðið með NIAS er að sameina norræna þekkingu til að ná fram hámarksnýtingu á rannsóknagetu og færni um Asíu.
Norræna tannlækningastofnunin (NIOM)
Verkefni NIOM er að vinna að því að læknisfræðileg tækniframleiðsla, sem nýtt er við tannviðgerðir á Norðurlöndunum, uppfylli heilbrigðis- og tæknilegar kröfur sem settar hafa verið með tilliti til þróunar á sviðinu.
Norræna tölvuleikjaáætlunin
Meginmarkmiðið með Norrænu tölvuleikjaáætluninni er að tryggja norrænni æsku aðgang að gæðatölvuleikjum.
Norræna umhverfisfjármögnunarfélagið (NEFCO)
NEFCO er norrænt umhverfisfjármögnunarfélag sem hefur það að meginmarkmiði að efla norræna þátttöku í umhverfismálum í mið- og Austur-Evrópu með því að fjármagna fyrirtæki í þessum löndum.
Norrænar skógarrannsóknir (SNS)
SNS er samstarfsstofnun sem fjármögnuð er af Norrænu ráðherranefndinni. Meginmarkmið stofnunarinnar er að efla rannsóknir á skógum og sjálfbærri skógrækt og nýtingu, auk þess að vera ráðgefandi fyrir Norrænu ráðherranefndina um skógrækt og -rannsóknir.
Norræni kvikmynda- og sjónvarpssjóðurinn
Markmið sjóðsins er fyrst og fremst að efla kvikmynda- og sjónvarpsþáttagerð á Norðurlöndunum með því að styrkja og fjármagna kvikmyndir, sjónvarpsþátta- og fræðslumyndagerð.
Norræni menningarsjóðurinn
Norræni menningarsjóðurinn er norrænn samstarfsvettvangur, sem styrkir menningarsamstarf í víðum skilningi milli norrænu ríkjanna.
Norræni sumarháskólinn (NSU)
Norræni sumarháskólinn er norrænt tengslanet um rannsóknir og þverfaglega menntun. Markmiðið er að vera vettvangur fyrir vísindamenn og nemendur til að skiptast á þekkingu og þróa nýjar hugmyndir.