Stofnanir
Stofnanir Norrænu ráðherranefndarinnar.
-
Kulturkontakt Nord
-
Norræna menningargáttin er öflug og nýstárleg menningarstofnun sem þjónar öllum Norðurlöndunum. Norræna menningargáttin hóf starfsemi sína 1.1.2012 með sameiningu Norrænu stofnuninnar í Finnlandi (Nifin) og fyrrum Norrænu menningargáttarinnar.
Hin nýja stofnun er miðstöð norrænna viðburða í Finnlandi. Hlutverk hennar er að miðla þekkingu um og efla áhuga á Norðulöndum í Finnlandi auk þess að hafa umsjón með tveimur af styrkjaáætlunum menningar og lista Norrænu ráðherranefndarinnar. Ennfremur er stofnunin meginaðsetur norræns menningarsamstarfs og miðlar upplýsingum um þetta samstaf innan og utan Norðulandanna. Per Voetmann er forstýra Norrænu menningargáttarinnar með skrifstofu bæði í Helsinki og í Suomenlinna. Stofnunin heyrir undir Norrænu ráðherranefndina.
-
NordForsk
-
NordForsk er norræn stofnun sem hefur umsjón með samstarfi um rannsóknir og rannsóknamenntun á Norðurlöndunum.
-
Nordisk Innovation
-
Nordisk Innovation setur á laggirnar og fjármagnar verkefni sem efla nýsköpun, stofnunin vinnur fyrst og fremst með litlum og meðalstórum fyrirtækjum á Norðurlöndunum. Markmiðið er að auðvelda þróun og rekstur fyrirtækja þvert á norræn landamæri.
-
Nordregio
-
Stofnun Norrænu ráðherranefndarinnar á sviði landnotkunar og gegnir með rannsókna-, menntunar- og verkefnastarfi sínu mikilvægu hlutverki í þróun framkvæmdagetu og pólitískra verkfæra.
-
Norðurlandahúsið í Færeyjum (FO)
-
Stofnunin er menningarmiðstöð í Færeyjum sem stuðlar að nánu samstarfi menningarlífs annars vegar í Færeyjum og hins vegar annars staðar á Norðurlöndum.
-
Norræn stofnun um framhaldsmenntun á sviði vinnuumhverfismála (NIVA)
-
NIVA er norræn stofnun sem hefur það hlutverk að vera vettvangur þekkingarmiðlunar á sviði vinnuumhverfis og atvinnulífs. NIVA stendur fyrir menntun, meðal annars með því að halda námskeið og vinnustofur.
-
Norræn upplýsingamiðstöð fyrir fjölmiðla- og samskiptarannsóknir (NORDICOM)
-
verkefni NORDICOM felast í því að miðla upplýsingum um fjölmiðla- og samskiptarannsóknir og um fjölmiðlaþróun á Norðurlöndunum.
-
Norræna erfðaauðlindastofnunin (NordGen)
-
NordGen - Norræna erfðaauðlindastofnunin, er norræn stofnun sem sér um varðveislu og sjálfbæra nýtingu plantna, húsdýra og skóga.
-
Norræna húsið í Reykjavík (NOREY)
-
Markmið Norræna hússins í Reykjavík (NOREY) er að auka norrænt samstarf og efla norræna samkennd. Stofnuninni er ætlað að vera norræn menningar- og þekkingarmiðstöð og skapandi fundarstaður, og tengiliður milli Íslands og annarra norrænna ríkja.
-
Norræna stofnunin á Álandseyjum (NIPÅ)
-
Verkefni stofnunarinnar felast í því að efla menningarlíf á Álandseyjum, auka þátttöku Álandseyja í norrænu samstarfi og þróa samstarf Álandseyja og annarra norrænna ríkja um alþýðumenningu.
-
Norræna stofnunin á Grænlandi (NAPA)
-
NAPA styrkir og eflir þróun grænlensks menningarlífs með sérstakri áherslu á barna- og æskulýðsmenningu auk þess að miðla norrænni menningu á Grænlandi og grænlenskri alþýðumenningu til annarra norrænna ríkja.
-
Norræna velferðarmiðstöðin
-
Verkefni Norrænu velferðarmiðstöðvarinnar er að auka gæði í félagsmálageiranum á Norðurlöndunum með rannsóknum, þróunarstarfi, uppbyggingu tengslaneta og alþjóðlegu samstarfi.
-
Norrænar orkurannsóknir
-
Norrænar orkurannsóknir er stofnun sem fjármagnar orkurannsóknir og heyrir undir Norrænu ráðherranefndina - fjölþjóðleg stofnun í eigu Svíþjóðar, Danmerkur, Finnlands, Noregs og Íslands.
-
Norræni lýðheilsuháskólinn (NHV)
-
NHV er stofnun um æðri menntun og rannsóknir á sviði lýðheilsu. Háskólinn býður grunn-, símenntunar- og rannsóknanámskeið í lýðheilsufræðum fyrir starfsfólk í heilbrigðisgeiranum og á sviðum sem tengjast honum á Norðurlöndunum.
-
Norræni verkefnaútflutningssjóðurinn (Nopef)
-
Nopef er stofnun sem heyrir undir Norrænu ráðherranefndina. Verkefni Nopef miða að því að styrkja samkeppnishæfni lítilla og meðalstórra fyrirtækja með því að veita þeim lán á sérstökum kjörum til hlutafjármögnunar grunnrannsókna.