Document Actions

Aðildarlönd og -svæði

Danmörk, Finnland, Ísland, Noregur og Svíþjóð hafa verið aðilar að Norrænu ráðherranefndinni síðan 1971. Þar að auki eiga Grænland, Færeyjar og Álandseyjar jafnmarga fulltrúa í Norrænu ráðherranefndinni og aðildarlöndin.

Ákvarðanir sem teknar eru í ráðherranefndinni eru einnig bindandi fyrir Færeyjar, Grænland og Álandseyjar að því leyti sem þær samræmast lögum sjálfstjórnarsvæðanna.

Hvert land hefur eitt atkvæði í Norrænu ráðherranefndinni. Í ráðherranefndinni sitja einn eða fleiri fulltrúar úr ríkisstjórn hvers lands. Þannig getur ráðherranefndin verið samsett af samstarfsráðherrunum eða fagráðherrum eða hvoru tveggja. Fulltrúar landsstjórna Færeyja, Grænlands og Álandseyja taka einnig þátt í starfi ráðherranefndarinnar.

Færeyjar, Grænland og Álandseyjar hafa fengið meira vægi í norrænu samstarfi síðan Álandseyja-yfirlýsingin var samþykkt af samstarfsráðherrunum í Maríuhöfn á Álandseyjum þann 5. september 2007.


 

Tengiliður

Jesper F. Schou-Knudsen
Sími: +45 33 96 03 55
Tölvupóstur: